Reykás 45, 110
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
69,9
|
Stærð |
109
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
642
|
Skráð |
24.4.2024 |
Fjarlægt |
3.5.2024 |
Byggingarár |
1983 |
mbl.is |
|
Palsson Fasteignasala kynnir:
Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald við Reykás 45.Húsið er í rólegri botnlanga-götu og barnvænu umhverfi.
* Glæsilegt útsýni til fjalla frá stofu og eldhúsi.
* Endurnýjað eldhús, parket og baðherbergi að hluta.Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir lgf. í síma 849-1921 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.iswww.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 108,9 m2
Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, þvottahús, tvennar svalir og geymslu.Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofa/borðstofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt er á svalir með miklu útsýni yfir Heiðmörk og Bláfjöll.
Eldhús er góðum borðkrók, þar er innrétting með góðu skápaplássi og parket á gólfi. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti, helluborð og bakarofn í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalögð með salerni, baðkari og sturtuklefa. Nýleg innrétting með handlaug, skúffum og speglaskáp.
Svefnherberi 1 er með parket á gólfi og fataskáp og útgengt út á svalir.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Þvottahús er innan íbúðar og inngengt frá eldhúsi. Þar er vinnuborð með skolvask, skápum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í sameign á jarðhæð með góðu hilluplássi ásamt sameiginlegri
hjóla og vagnageymslu.
Eignin er á rólegum barnvænum stað í hjarta Árbæjar og stutt að sækja alla helstu þjónustu.
Viðhald eignar tiltelur ma. :
* 2022 var þak endurnýjað sem og gluggar endurnýjaðir eftir þörfum.
* 2016 var húsið sprunguviðgert, málaður múr, steypa og tréverk og svalir flotaðar.
* Í sameign hefur teppi verið endurnýjað sem og hurð inn í íbúð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.