Kötlufell 11, 111
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
31,9
|
Stærð |
78
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
408
|
Skráð |
17.10.2019 |
Fjarlægt |
31.10.2019 |
Byggingarár |
1974 |
mbl.is |
|
*** EIGNIN ER SELD EN Í FJÁRMÖGNUN ***
Fasteignasala Reykjavíkur og Þórdís Davíðsdóttir lgf. kynna nýtt í sölu:
Rúmgóð þriggja herbergja íbúð með yfirbyggðar vestur svalir í Fellahverfi og sérmerktu bílastæði.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar
78,2 fm og er
íbúðarrýmið sjálft 72,2 fm og geymsla á jarðhæð 6,0 fm.
Fallegt útsýni er austur upp að Elliðavatni og stutt er í fallegar gönguleiðir. Grunn- og leikskóli eru í göngufæri.
***FYRIRHUGAÐ FASTEIGNAMAT FYRIR 2020 ER KR. 30.000.000.-***
Upplýsingar um eign og bókun á skoðun veitir:
Þórdís Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 862-1914 milli kl. 9:00 og 19:00 alla virka daga eða á netfangið thordis@fr.is
Eignin hefur að geyma miðrými, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stofu og yfirbyggðar svalir.
Komið er inn í miðrými íbúðar þar sem er tvöfaldur fataskápur.
Svefnherbergin eru tvö,
hjónaherbergi og
barnaherbergi. Bæði eru með fataskápum og plastparketi á gólfi.
Eldhúsið er rúmgott með góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og rúmgóðum borðkróki. Höldur hafa verið endurnýjaðar og innrétting filmuð.
Baðherbergið er endurnýjað að hluta 2017. Flísar eru á gólfi og upp á vegg, skúffueining undir handlaug, baðkar með sturtu. Tengi er fyrir þvottavél við enda baðkars.
Stofan er nokkuð rúmgóð og björt með útgengi á yfirbyggðar svalir sem snúa til vesturs.
Plastparket er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergið.
Í sameign er
geymslan sem er 6 fm m/veggföstum hillum,
sameiginlegt þvottahús og
hjólageymsla.
Kötlufell 1-11 hefur verið klætt að utan fyrir þó nokkuð morgum árum og er svotil viðhaldsfrítt og þá á sama tíma gluggar endurnýjaðir.
Endurnýjun á húsinu og viðgerðir:
Þakgluggi í sameign var endurnýjaður og lagað þar í kring 2019.
Þakjárn, þakpappi og dúkur yfirfarið og endurnýjað að matsþörf 2017.
Allar nánari upplýsingar veitir Þórdís Davíðsdóttir löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 eða á thordis@fr.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Fasteignasala Reykjavíkur skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við sölu á fasteignum frá 2011og legg ég áherslu á vönduð vinnubrögð og góð samskipti við seljendur og kaupendur.
Þú færð frítt sölumat hjá mér og án skuldbindingar.
Hafðu samband í dag í síma: 862-1914 eða á netfangið thordis@fr.is
Heimasíða Fasteignasölu Reykjavíkur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk