Klukkuholt Gbæ. 15, 225
Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá
Verð |
112,5
|
Stærð |
152
|
Tegund |
RaðPar |
Verð per fm |
742
|
Skráð |
26.3.2023 |
Fjarlægt |
1.4.2023 |
Byggingarár |
2006 |
mbl.is |
|
Hraunhamar kynnir: Klukkuholt 15 Garðabæ (Álftanes). Glæsilegt vandað endaraðhús á einni hæð með innb. bílskúr samtals 151,7 fm. (byggt 2006) Frábær staðsetning í rólegum botnlanga.
Hiti í gólfum. Stórar verandir báðum megin við húsið. Heitur pottur. Virkilega góð eign á þessum rólega og vinsæla stað. Húsið gæti verið laust fljótlega.
Vinsamlegast pantið tíma til að skoða. (sýnum líka samdægurs) Eignin skiptist m.a. þannig: Forstofa með skáp,
hol/alrými, glæsilegt rúmgott
eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum. (útgengt á suður veröndina) Borðplötur með steini á. Glæsileg
eyja með keramikhelluborði og steinplötu.
Rúmgóð björt
borðstofa er við eldhúsið.(hurð út í garð)
Stofan er björt og falleg með hurð út í garðinn og sólpallinn. Rúmgott
svefnherbergi með skáp, og annað gott herbergi með skáp. Glæsilegt
baðherbergi, góð sturtuaðstaða þar.
Inn af holi er rúmgott
þvottaherbergi með innréttingu og skolvaski. Innangengt er í bílskúr frá holi en í dag er
bílskúrinn tvískiptur þannig að í honum er rúmgóð herbergisaðstaða (gluggalaus) og geymsluðastaða. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs líka.
Frá holi er gengið upp vandaðan hringstiga, en þar er opin
koníksstofa á teikningu (gler frontur) en gott
vinnuherbergi í dag nokkuð undir súð.(ekki barnaherbergi) Velux gluggi þar.
Flísar og parket á gólfum. Hiti í öllum gólfum. (nema í risherbergi)
Garðurinn er rúmgóður og fallegur með pöllum, skjólgirðingum og heitum potti.Verönd að framan og aftanverðu. Geymsluhús að aftanverðu. Grillskýli að framanverðu.
Stórt bílaplan, hellulagt og upphitað.
Nánari upplýsingar:
Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is
Freyja M Sigurðard. löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala, s. 862-4800 freyja@hraunhamar.ishttps://hraunhamar.is/https://www.facebook.com/hraunhamarhttps://www.instagram.com/hraunhamar/