Norðurbakki 19A, 220

Fjarlægð/Seld - Eignin var 83 daga á skrá

Verð 58,5
Stærð 115
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 509
Skráð 10.11.2017
Fjarlægt 1.2.2018
Byggingarár 2008
mbl.is

HÚSASKJÓL FASTEIGNASALA KYNNIR:

*** EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI. MIKILL ÁHUGI VAR FYRIR EIGNINNI OG VANTAR OKKUR ÞVÍ FLEIRI SAMBÆRILEGAR EIGNIR Í SÖLUMEÐFERÐ, SENDU MÉR LÍNU Á BERGROS@HUSASKJOL.IS EÐA HAFÐU SAMBAND Í SÍMA Í 893-9381 FYRIR SKULDBINDINGALAUSA RÁÐGJÖF ***

ERTU AÐ LEITA AÐ SAMBÆRILEGRI EIGN  - SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á KAUPÓSKALISTA HÚSASKJÓLS


Björt og fín 3ja herbergja íbúð á efstu hæð við Norðurbakka 19a. Íbúðin er skráð 106,1 fm, geymsla í sameign er skráð 8,8 fm. Heildarstærð eignar er skráð 114,9 fm. Tvö bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgja eigninni.

Smelltu hér til þess að sjá dróna myndband af hverfinu
Smelltu hér til þess að sjá teikningar af eigninni

Lýsing eignar:

Komið er inn forstofu með parketi á gólfi og fataskápum. Stofa og eldhús er opið rými með parketi á gólfi, eldhúsinnréttingu á einum vegg, með efri og neðri skápum, eldhúseyju með helluborði og háf, útgengt er út á svalir sem snúa yfir garðinn og með útsýni yfir sjóinn. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu. Þvottahús er með flísum á gólfi, með gólfhita, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborði, hillum og vask.   Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, fataherbergi með góðu skápaplássi og útgengt út á svalir úr hjónaherbergi. Barnaherbergi er með parketi á gólfi. Sérgeymsla í sameign og tvö bílastæði í upphituðum og læstum bílakjallara fylgja eigninni. 
Það er gólfhiti í allri íbúðinni,  mynddyrasími, lyklalaust aðgengi að stigagangi, að framan og úr bílakjallara

Staðsetning og nærumhverfi:
Þessi íbúð er staðsett við Norðurbakkann. Við Norðurbakkan eru tvö kaffihús, Brikk og Norðurbakkinn Bækur og kaffihús. Góður hjóla og göngustígur liggur framhjá þar sem hægt að er að fara m.a meðfram sjónum niðrí miðbæinn í Hafnarfirði en fjöldi  göngu- og hjólaleiða liggja um Hafnarfjörð. Í Hafnarfirði er hægt að nálgast helstu þjónustu og verslanir s.s   Bónus, Krónan við Flatahraun og Hvaleyrarbraut, Fjarðarkaup, Nettó, Vesturbæjarís, Hafís, Súfustinn, Vort daglegt brauð, Subway, KFC, American Style, Saffran, Tokyo sushi og Osushi,  3 sundlaugar, 2 heilsugæslur, heilsugæslan Sólvangi og heilsugæslan Fjörður. Fjörður verslunarmiðstöð er í göngufæri og þar er hægt að nálgast pósthús, bakarí, apótek,hárgreiðslustofur, verslanir og fleira.  Bókasafn Hafnarfjarðar er staðsett í Strandgötu 1. Byggðasafn Hafnarfjarðar er minja og ljósmyndasafn Hafnarfjarðarbæjar. Hafnarborg er menningar og listasafn Hafnarfjarðar. Stutt er í náttúruna, Ásfjallið og Ástjörnina. Hvaleyravatn og Helgafell eru líka í næsta nágrenni. Fyrir þá sem hafa áhuga á golfi þá er Urriðavöllur og Setbergsvöllur einnig stutt frá. 

Samantekt:
Virkilega fín eign á góðum stað i Hafnarfirði með ýmsa þjónustu í göngufæri

Allar upplýsingar veitir Bergrós Hjálmarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma: 893-9381 eða email: bergros@husaskjol.is


Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.

 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði


Húsaskjól fasteignasala- af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum?  Pantaðu frítt sölumat og skoðaðu kaupendaskrána okkar.
Ertu í eignaleit?                 Skráðu þig á kaupendalistann okkar.


Kíktu á Húsaskjól á facebook.
Kíktu á heimasíðu Húsaskjóls.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47