Engihjalli 9, 200

Fjarlægð/Seld - Eignin var 34 daga á skrá

Verð 49,9
Stærð 62
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 802
Skráð 5.1.2024
Fjarlægt 9.2.2024
Byggingarár 1978
mbl.is

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali (s: 823-2800 / monika@landmark.is) kynna:

Fallega og mikið endurnýjaða tveggja herbergja 62,2 fm útsýnisíbúð á 10. hæð við Engihjalla 9 í Kópavogi. 
Íbúðin er með nýlegri vandaðri eldhúsinnréttingu og fataskápum frá Axis. Gólfefni og baðherbergi hefur einnig verið endurnýjað og eru hlýlegar veggjaklæðningar við gang og stofu. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni með sér tengi fyrir þvottavél. Stórar svalir í vestur. Sér geymsla í kjallara. Talsverðar endurbætur eru yfirstandandi á húsinu. Meðal endurbóta eru múrviðgerðir, háþrýstiþvottur, málun, endurbætur á svölum, svalahandriðum og á sameign. Þrír áfangar af fjórum eru afstaðnir og þegar greiddir af seljanda. Seljandi er reiðubúinn að greiða fyrir hlut íbúðar í 4. áfanga. Hér er því gott tækifæri til að kaupa góða endurbætta íbúð í vel endurbættu fjölbýlishúsi. 

Rúm, sófi, sófaborð, sjónvarpsbekkur, ásamt sjónvarpi getur fylgt með í kaupum. 

Sækja söluyfirlit strax


Birtar stærðir: Íbúð er 62,2 fm ( merkt 011005) sér geymsla í kjallara skv. eignaskiptasamningi. 

Hol er með með fatahengi og skáp ásamt öðrum stórum fataskáp, harðparket á gólfi. 
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. Útgengi á svalir í vestur. 
Eldhús er með nýlegri vandaðri innréttingu frá Axis með LED lýsingu undir efri skápum, innbyggðum ísskáp, bakarofni, helluborði og gufugleypi, harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskápum frá Axis, harðparket á gólfi. Útgengi á svalir í vestur. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, hvítri baðinnréttingu, speglaskáp yfir og sturtu, handklæðaofn á vegg. 
Sér geymsla í kjallara. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign. 
Tvær lyftur eru í húsinu. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / monika@landmark.is / 823-2800
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / julius@landmark.is / 823-2600
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25