Áshamar 2, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 89,9
Stærð 120
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 751
Skráð 10.5.2024
Fjarlægt 17.5.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun kynnir nýjar eignir við Áshamar 2-10 í glæsilegum fjölbýlishúsum í Svansvottuðu ferli í Hamranesi í Hafnarfirði. Í húsunum eru 140 íbúðir, allt frá stúdíóíbúðum til fjögurra herbergja íbúða. Íbúðirnar eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi. Glæsilegt hverfi í nágrenni við stórkostlega náttúru, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Kleifarvatn o.fl. 

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Rögnvaldur Örn Jónsson, Löggiltur fasteignasali  í síma 6603452 eða rognvaldur@eignamidlun.is

**Sækja söluyfirlit**

Heimasíða verkefnisins:

Áshamar 2, íbúð 03-02 er 119.7 fm 4 herb.íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á mjög góðum stað í Hafnarfirði. Stæði í bílskýli merkt B2-03 fylgir íbúðinni.
Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 119.7 fm, með geymslu í sameign.

Bókið skoðun hjá sölumanni Eignamiðlunar.
Oddný María Kristinsdóttir í síma 777-3711 eða oddny@eignamidlun.is
Magnús Þórir Matthíasson í síma 895-1427 eða magnusm@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson í síma 899-8815 eða kari@eignamidlun.is
Rögnvaldur Örn Jónsson í síma 660-3452 eða rognvaldur@eignamidlun.is

Nánari lýsing:
Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar meö öllum innréttingum og gólfefnum, flísar og vandað harðparket verður á gólfum.
Eldhúsinnrétting er frá Nobilia í Þýskalandi. Eldhúsinnrétting er fullbúin með blöndunartækjum og eldhústækjum þ.e. helluborði, viftu í innréttingu eða eyjuháfi yfir helluborði þar sem það á við, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og ofni. Eldhústæki eru frá AEG.
Baðherbergisgólf og sturturými eru flísalögð. Baðherbergisveggir eru spartlaðir og málaðir með rakaþolinni málningu á þeim veggjum sem ekki eru flísalagðir. Baðinnrétting er með neðri skáp, hvítri handlaug og efri skápum með spegli á hurðum og ljósi. Salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Blöndunartæki á baði eru hitastýrð blöndunartæki og sturtustöng með utanáliggjandi blöndunartækjum. Lýsing er í lofti á baðherbergjum. Vandað harðparket er á alrýmum. Sjá nánar í skilalýsingu. Innréttingar í þessari íbúð eru: Ljós-Concrete Sand.

Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3