Kópavogsbraut 47, 200

Verð 88,7
Stærð 110
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 806
Skráð 16.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 1977
mbl.is 1250968

Palsson Fasteignasala kynnir:

Falleg 3ja herbergja íbúð á 2.hæð, efstu hæð, í tveggja hæða húsi við Kópavogsbraut 47, 200 Kópavogur.

* Töluvert mikið endurnýjuð haustið 2023.
* Rúmgóður bílskúr.
* Góðar svalir til suðurs og vesturs
* Skemmtilega hönnuð.
* Verslanir, leikskóli og skóli í göngufæri.
* Sunnan megin á Kársnesinu og garður til suðurs
* Mjög vel staðsett í vesturbæ Kópavogs.

Nánari upplýsingar veita:
Edwin Árnason lgf. í síma 893-2121 eða edwin@palssonfasteignasala.is

******palssonfasteignasala.is*****
*****verdmat.is****


Nánari lýsing íbúðar:
Rúmgóð, vel skipulögð og töluvert mikið endurnýjuð, gert haustið 2023, þriggja herbergja íbúð með bílskúr, á mjög eftirsóttum stað, í fjölskylduvænu hverfi að Kópavogsbraut 47, 200 Kópavogi. Íbúðin skiptist í gott alrými með stofu og eldhúsi.  Herbergjagang þar sem eru 2 herbergi, baðherbergi og þvottahús og stórar suður og vestur svalir með fallegu útsýni.  Haustið 2023 var íbúðinni breytt, skipt um gólfefni, sett ný eldhúsinnrétting og tæki og innihurðir sprautulakkaðar hvítar og skipt um rafmagn að hluta til ásamt öllum dósum.  Húsið hefur fengið mjög gott viðhald síðustu ár.   Íbúðin er skráð 110,1 fm. og þar af er bílskúr 27,5 fm.  


Forstofa: Komið inn í anddyri með flísum á gólfi, sem opið er að alrými og eldhúsi, harðparket á alrými.
Alrými:   Rúmgott og bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.  Góðir gluggar til suðurs og vesturs.
Eldhús:  Eldhúsið er opið að stofu, ný svarbrún eldhús innrétting og eldunareyja. Uppþvottavél ásamt nýlegum eldhústækjum, nýlegri eldunarhellu og ofni.
Stofa:  Rúmgóð og björt stofa opin að eldhúsi. Útgengi er út á góðar svalir sem snúa í suður og vestur, gott útsýni til suðurs og suðvesturs
Svefnherbergi: Barnaherbergi án skápa
Hjónaherbergi:  Rúmgott og með fataskáp. 
Baðherberbergi: . Baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, flísar á veggjum og gólfi. Góð innrétting með nýrri borðplötu.
Þvottahús: Þvottahús er rúmgott, með máluðu gólfi og með glugga.
Samstætt parket er á rýmum íbúðarinnar, samstæðar flísar við forstofu og útgengi út á svalir, flísar á baðherbergi.
Bílskúr/geymsla: Rúmgóður og ný málaður, 27,5 fm bílskúr. 
Garður: Skjólgóður og vel hirtur garður til suðurs, sem er í sameign.

Eignin er mjög vel staðsett, stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu, verslun og íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir við Kópavoginn og Nauthólsvík í stuttu göngufæri.

Allar nánari upplýsingar veitir:  Edwin Árnason, Löggiltur Fasteignasali í s: 893-2121 eða á edwin@remax.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Remax Senter því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26