Davíðshagi 201, 600
Fjarlægð/Seld - Eignin var 405 daga á skrá
Verð |
38,2
|
Stærð |
97
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
394
|
Skráð |
22.11.2018 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
2018 |
mbl.is |
|
Gellir fasteignasala 461-2010 gellir@gellir.is
Davíðshagi 6 101 4ra herbergja fjölbýlishús með lyftu í Hagahverfinu.
Húsið er á þremur hæðum og áætluð verklok eru um áramót 2018/19.
Verktaki er byggingafélagið Hyrna.
Skilalýsing fjölbýlishúss við Davíðshaga 6
Frágangur utanhúss:
Bílastæði og gangstétt er steypt, eða malbikað. Lóðin er þökulögð með túnþökum.
Gólfefni:
Stigahús er með flísum á jarðhæð en teppi á stigagöngum. Hjóla- og vagnageymsla er flísalögð. Plastparket á alrými, herbergi og geymslu. Flísar eru á forstofu, baðherbergi/þvottahúsi og geymslu í sameign.
Forstofa:
Í forstofu er tvöfaldur fataskápur með fataslá og hillum.
Baðherbergi:
Baðinnrétting úr plastlagðri struktur-eik er á baðherbergi.
Speglar og ljós fylgja. Baðherbergi er flísalagt í hólf og golf. Vegghengt klósett, sturtuhorn úr gleri og blöndunartæki af vandaðri gerð.
Eldhús:
Eldhúsinnrétting er úr plastlagðri struktur-eik. Bekkplötur eru úr formbeygðu harðplasti. Skúffubrautir, hengsli og höldur eru af viðurkenndri og vandaðri gerð. Í eldhúsinnréttingu er svart keramik-helluborð, stál -bakaraofn, innbyggð vifta, ísskápur og vaskur.
Herbergi:
Í herbergi og geymslu er fataskápur með fataslá, hillum og 4 skúffubökkum. Í svefnherbergjum eru fataskápar.
Þvottahús:
Í þvottahúsi er þvottatækjainnrétting úr plastlagðri struktur-eik.
Sólbekkir eru formbeygðir úr hvítu harðplasti.
Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik.
Upphitun:
Íbúðirnar eru með gólfhita.
Raflögn:
Öll raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir og rofar komnir á sinn
stað. Síma- og sjónvarpslagnir í stofurými og herbergjum.
Kappalýsing er á baðherbergi og eldhúsi, einnig fylgja loftljós í
þvottahúsi og baðherbergi.
Íbúðir tilbúnar til afhendingar : Desember 2018- febrúar 2019