Verð | 54,9 |
Stærð | 64 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 861 |
Skráð | 21.9.2023 |
Fjarlægt | 13.10.2023 |
Byggingarár | 1959 |
mbl.is |
.
Vel skipulögð og björt 63,8 fm, tveggja herbergja endaíbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Gnoðarvog 14. Margvíslegar endurbætur undanfarin ár. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði. Gott og reglulegt viðhald á húsinu. Eignin getur verið laus við kaupsamning. Bókið skoðun í s. 693-9683.
Nánari lýsing:
Andyri/hol: Rúmgott með flísum á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flotað gólf, baðkar og nýleg innrétting. Opnanlegur gluggi.
Stofa: Björt og með glugga á tvo vegu. Parket á gólfi og gengið út á svalir sem snúa til suð-vestur.
Eldhús: Upprunaleg innrétting sem er í góðu ásigkomulagi og dúkur á gólfi. Innst í eldhúsinu er borðkrókur með föstu borði og bekk sem fylgir með. Frístandandi uppþvottavél.
Geymsla: 4,4fm geymsla staðsett í kjallara hússins.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús auk þess sem þar er vagna- og hjólageymsla. Gott og reglulegt viðhald á húsinu ásamt því að í húsinu er vel rekið húsfélag.
Nýlegar endurbætur skv. seljanda:
Þrjá hliðar hússins eru klæddar en svalahlið er múruð og þar hafa allar svalir verið stækkaðar. Skipt var á sama tíma um glugga er snúa út í garð (stofa , eldhús og svalahurð). Aðkoma að húsinu var einnig endurnýjuð á smekklegan hátt.
Fyrirhugað fasteignamat ársins 2024: kr. 48.500.000,-
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður, lögmaður og löggiltur fasteignasali í s. 899-1229 eða sfs@landlogmenn.is