Lautasmári 10, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 29 daga á skrá
Verð |
37,7
|
Stærð |
76
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
498
|
Skráð |
25.5.2018 |
Fjarlægt |
23.6.2018 |
Byggingarár |
1997 |
mbl.is |
|
Eignatorg kynnir: Eignin er seld og í fjármögnunarferli.
Nýtt á skrá - Falleg og björt 2ja herbergja íbúð í góðu og viðhaldsléttu fjölbýli á þessum vinsæla stað. Þvottahús innan íbúðar. Rúmgóðar vestur svalir.
Skv. skráningu Þjóðskrár er íbúðin 73 fm og sérgeymsla í kjallara 2,7 fm. Samtals er eignin því skráð 75,7 fm.
Nánari lýsing: Forstofuhol með parketi á gólfi og forstofuskáp. Herbergi með parketi á gólfi og klæðaskápum. Þvottahús með flísum á gólfi og skolvaski. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, innréttingu, baðkari og sturtu. Rúmgóð stofa með parketi á gólfi, gluggum til vesturs og hurð út á flísalagðar vestur svalir. Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu, borðkrók og glugga. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Í kjallara er sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð