Brókarvatn 11, 311

Fjarlægð/Seld - Eignin var 729 daga á skrá

Verð 1,9
Stærð 9.083
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm 0
Skráð 2.5.2022
Fjarlægt 1.5.2024
Byggingarár
mbl.is

Miklaborg kynnir: Einstakar sumarhúsalóðir við Brókarvatn sem er í landi Arnarstapa í Borgarbyggð. Í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Borgarnesi og því stutt í alla helstu þjónusutu. Sumarhúsasvæðið er einstaklega vel staðsett í kyrrsælu og ægifögru fjölbreyttu landslagi. Í boði eru vatnsbakkalóðir, einnig lóðir meðfram klöppum með víðsýnu útsýni. Lóðir eru alls 37 og lóðarstærðir frá 0,57 - 2.30 hektarar að stærð. Grunnflötur húsa má vera 100-400 fm að stærð og skulu vera á einni hæð. Kalt vatn og rafmagn í götu meðfram lóðum en inntaksgjöld ógreidd.

Aðkoma er að sumarhúsasvæðinu frá þjóðvegi 52 (Snæfellsvegur) sjá hér á Google Maps.  Alls er gert ráð fyrir 37 lóðum innan svæðisins og skulu hús vera frá 100-400 fm að stæðr skv. byggingarskilmálum er fram koma í deiliskipulagi sem sjá má hér.  Einnig eru upplýsingar á vefsíðu sumarhúsasvæðisins hér.

Brókarvatn 11 er 9083 fm sléttlend lóð fyrir ofan veg sem liggur upp að klettaborgum efst í hverfinu, glæsileg byggingarlóð með útsýni yfir vatnið. Sjá nánar skipulag svæðisins.

Lóðin verður stofnuð fyrir kaupsamning og ber seljandi þann kostnað. Uppgefið verð miðast við stofngjald leigulóðar en Í boði er einnig að kaupa lóðina sem eignarland á 5.760.000 kr.  Ársleiga fyrir leigulóð er 192.000 á ári og í boði er samningur til 50 ára eða lengur ef óskað er.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is og Óskar Sæmann löggildingarnemi í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12