Skipholt 17, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
44,5
|
Stærð |
125
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
355
|
Skráð |
7.3.2016 |
Fjarlægt |
15.3.2016 |
Byggingarár |
1968 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun kynnir:
Mjög góð 125 fm íbúð á tveimur hæðum (efstu) við Skipholt 17 í Reykjavík. Íbúð 303. Tvö svefnherbergi og tvær stofur. Fallegt útsýni frá inndregnum svölum efri hæðar til suðurs. Neðri hæð skiptist í hol, eldhús og stofu. Efri hæð skiptist í tvö svefnherbergi, þar af eitt stórt, stofu og baðherbergi. Stórar suður svalir. Íbúðin er í leigu og selst með réttindum og skyldum leigusala.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er íbúð neðri hæðar skráð 50,8 fm, íbúð efri hæðar 62,3 fm og sér geymslur skráðar 7,4 fm og 4,8 fm. Samtals 125,3 fm.
Íbúðin hefur verið standsett á síðustu árum. Gengið er parketlagt hol. Stofan er parketlögð með góðum gluggum til suðurs. Eldhúsið er nokkuð stórt og er opið yfir í stofu með eikarinnréttingu og glugga. Á efri hæð er komið upp á parketlagað stofu/sjónvarpsstofu. Þaðan er gengið út á 16,7 fm inndregnar svalir. Svefnherbergin eru tvö með parketi á gólfum og fataskápum. Baðherbergið á hæðinni er flísalagt með baðkari og tengi fyrir þvottavél.
Seljandi eignaðist fasteignina í skuldaskilum og hefur aldrei haft starfsemi eða afnot af eigninni. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali allan nauðsynlegan aðgang til þess. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun.
Utan opnunartíma gefur Hilmar Þór Hafsteinsson löggiltur fasteignasali upplýsingar s. 824-9098 eða hilmar@eignamidlun.is.
Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is.
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga