Þurárhraun 5, 815

Fjarlægð/Seld - Eignin var 42 daga á skrá

Verð 85,9
Stærð 138
Tegund RaðPar
Verð per fm 621
Skráð 8.9.2022
Fjarlægt 21.10.2022
Byggingarár
mbl.is

Fasteignasalan Garður sími 562-1200.

Nýtt og glæsilegt 4ra herbergja, staðsteypt raðhús á einni hæð. Afhendist fullbúið að innan og utan, á frábærum stað í nýju hverfi í Þorlákshöfn, 30 mín frá Reykjavík.  3 rúmgóð svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, innangengt í bílskúr, stofa eldhús og borðstofa í opnu rými með góðri lofthæð.

Þrjú hús eru í lengjunni og er um miðjuhús að ræða. Húsið er glæsilega hannað, klætt með fallegri bronsaðri álbáru og gegnheilum bambus. Einhalla þak og allt að 3,7m lofthæð í stofu. Bambus borðin eru eldþolin, mygla ekki og eru með bæði LEED og BREEAM vottun.*


Fá söluyfirlit sent samstundis.                             Bóka skoðun í opið hús

Stærð samkvæmt fasteignaskrá: Íbúðarrými: 110,1 fm bílskúr: 26,8 fm samtals: 136,9 fm

Húsið er í byggingu og verður afhent fullbúið eða eftir samkomulagi, ef séróskir eru með lokafrágang.
Húsið er vel staðsett, með snyrtilegum frágengnum garði sem snýr til suðvesturs. Sól er á veröndina sirka frá hádegi og fram á kvöld. Útgengt er á veröndina frá hjónaherbergi og frá stofu um stóra rennihurð.  Veröndin er stúkuð af milli húsa, skjólgóð, yfirbyggð með skyggni og flísalögð með svörtum 60x60 Brave Coke flísahellum.** 
Lóðin er að öðru leiti þökulögð. Innfelld lýsing og tenglar (fyrir jólaseríurnar) eru í þakkanti beggja megin húss. Ídráttarrör og frárennsli er klárt fyrir heitan pott í garðinum, garðkrani er tengdur. Framan við húsið er steypt bílaplan með hitalögn sem er tilbúin til tengingar. 

Lýsing eignar fullbúin:

Anddyri: Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp. 
Baðherbergi: Flísalagt 6,5 fm baðherbergi með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og stórri sturtu, aðskilinni með gleri. 
Svefnherbergi I: Inn af anddyri er 9,7 fm svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi. 
Hol / gangur: Frá anddyri er komið inn í stórt hol í miðrými hússins, þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Parket á gólfum.
Eldhús: Opið inn í stofu, vönduð innrétting með góðu skápaplássi, uppþvottavél, helluborð og ofn fylgir. Góð lofthæð er í eldhúsi og sameinast það stofu á skemmtilegan hátt. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum ásamt stórri rennihurð þar sem er útgengt á verönd til suðvesturs. Parket á gólfi.  Lofthæðin í stofunni er flott (einhalla að 3,7 m) og gefur henni virkilega flott yfirbragð.
Hjónaherbergi: Er sérlega glæsilegt með stórum fataskápum, útgengi á suðvesturverönd og sér baðherbergi með sturtu. Parket á gólfi.
Baðherbergi II: Er inn af hjónaherbergi, flísalagt, með handlaug, fallegri innréttingu, handklæðaofni og sturtu. 
Svefnherbergi II: Rúmgott 9,8 fm með fataskáp og mikilli lofthæð. Parket á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott með góðri lofthæð.  Vaskaskápur með tengi fyrir þvottavél og þurrkara hlið við hlið undir borðplötu. Gott pláss er til að setja upp hillur og innangengt er í bílskúrinn. 
Bílskúr: Góð bílskúrshurð með rafmagnsopnara og innangengt í þvottahús. Í bílskúr er gert ráð fyrir tengi fyrir rafmagnsbíl og er hægt að setja hleðslustöðina upp hvort sem er inní skúr eða utan á klæðninguna fyrir framan bílskúrinn. Hleðslustöðin sjálf fylgir ekki með.  
Bílaplan: Stórt steypt bílaplan með 2 stæðum, ílögð en ótengd snjóbræðsla. 
Lóðin: Er fullfrágengin, steypt bílaplan með hitalögn fyrir framan hús, tyrfð lóð og flísalögð verönd út frá stofu og hjónaherbergi. Búið er að leggja ídráttarrör fyrir heitan pott frá bílskúr út í garð og ganga frá affalli.  Garðkrani utan á húsi lóðarmegin.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU S562-1200 EÐA HJÁ SÖLUMÖNNUM;
HALLDÓR S. 693-2916 – halldor@fastgardur.is
SVEINBJÖRN S. 892-2916 - sveinbjorn@fastgardur.is


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19