Verð | 34,9 |
Stærð | 108 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 323 |
Skráð | 9.10.2015 |
Fjarlægt | 20.10.2015 |
Byggingarár | 1993 |
mbl.is |
Fasteignasala Reykjavíkur kynnir:
NÝTT Í EINKASÖLU - MÖGULEG SKIPTI Á MINNI EIGN Í KÓPAVOGI EÐA GARÐABÆ
Björt, falleg og einstaklega vel skipulögð 107,9 fm 5 herb. íbúð á einum besta stað í Kópavogi. Stutt er í alla þjónustu.
Bókið skoðun hjá Þórdísi í síma 862-1914 eða á netfangið thordis@fr.is
Nánari lýsing: Íbúðin er á 2.hæð og samanstendur af 4 svefnherbergjum, þvottahúsi, eldhúsi, baðherbergi, miðrými, forstofu og samliggjandi stofu og borðstofu.
Geymsla er í kjallara en er ekki skráð inní fermetratölu íbúðar en hún er ca 5-6 fm.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskápum. Þaðan er komið inn í opið og bjart miðrými íbúðar.
Stofan og borðstofan eru samliggjandi í björtu rými og er útgengt á vestur svalir. Opið er inní eldhús og er plastparket á gólfi.
Eldhúsið er bjart og skemmtilegt með glugga til vesturs, tengi fyrir uppþvottavél og innrétting úr beiki. Ljósar flísar eru á milli skápa.
Barnaherbergin eru þrjú og eru öll í góðri stærð, með fataskáp og plastparket á gólfi.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðum fataskápum og dúk á gólfi.
Á baðherbergi er baðkar, salerni og skápur undir handlaug. Ljósar flísar eru á gólfi og uppá veggi.
Þvottahúsið er á svefnherbergisgangi. Flísar eru á gólfi og er bæði vaskur og opnanlegur gluggi í þvottahúsi.
Eignin er í sex íbúða fjölbýli með sameiginlegum inngangi. Íbúðin er sérlega vel skipulögð, björt og eru herbergin nokkuð rúmgóð.
Hjólageymsla er í sameign og er hún öll hin snyrtilegasta.
Stutt er í skóla, leikskóla og alla þjónustu - Frábær staðsetning.
Allar nánari upplýsingar veitir Þórdís Davíðsdóttir s: 862-1914 eða á thordis@fr.is og Sylvía Walthersdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum.
(Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 57.000 kr. m.vsk.
Ertu í sölu eða kauphugleiðingum? Bjóðum upp á frítt söluverðmat án skuldbindingar og góða þjónustu. Hafðu samband, það kostar ekkert. Þórdís í síma 862-1914 eða á thordis@fr.is