Furugrund 60, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 2 daga á skrá
Verð |
29,9
|
Stærð |
85
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
351
|
Skráð |
10.3.2016 |
Fjarlægt |
12.3.2016 |
Byggingarár |
1974 |
mbl.is |
|
"EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING "
BRÚ fasteignasala kynnir 3 til 4ra.herbergja íbúð á 2. og efstu hæð við Furugrund 60 í Kópavogi. Eignin telur forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og rúmgott svefnherbergi í kjallara. Auk sérgeymslu, sameiginlegt þvottahús og hjólageymslu. Frábær staðsetning í þessu vinsæla og rótgróna hverfi. Stutt er í alla þjónustu og í eina helstu náttúruperlu höfuðborgarsvæðisins, Fossvogsdal.
ATH íbúðin þarfnast töluverðra endurbóta og er ásett verð eignarinnar miðað við ástand eignarinnar. Það sem helst ber að nefna er eldhúsinnrétting, baðinnrétting, skápar, gólfefni og báðar svalahurðirnar.
Nánari lýsing.
Forstofa með parketi á gólfi og ljósum fataskáp.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á stórar svalir sem að snúa í suður. Mjög mikil veðursæld.
Eldhús með eldri innréttingu með flísum á milli skápa. Nýlegur bakaraofn með keramik hellum og nýleg vifta.Gert er ráð fyrir háum ísskáp.
Barnaherbergi með dúk á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og eldri fataskáp. Útgengt er út á svalir.
Baðherbergi með flísum á gólfi og í kringum baðkar. Baðkar með sturtu. Ljós innrétting.
Rúmgott herbergi sem að er staðsett í kjallaranum með dúk á gólfi. Laus fataskápur. Opnanlegur gluggi. Herbergi er 9,7 m2.
Sér geymsla með máluðu gólfi og hillum. Ekki inn í fm tölu eignar.
Sameiginlegt stórt þvottahús þar sem að hver er með sínar vélar.
Sameiginleg hjólageymsla.
Húseignin var sprunguviðgerð og máluð sumarið 2007. Allar upplýsingar veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síms 822 2123 eða helga@brufast.is