Kötlufell 11, 111
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
36,9
|
Stærð |
63
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
588
|
Skráð |
9.9.2021 |
Fjarlægt |
18.9.2021 |
Byggingarár |
1974 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 2ja - 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli við Kötlufell 11 í Breiðholti. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn skráður 57,7 m2 auk 5,1 m2 geymslu. Samtals 62,8 m2. Yfirbyggðar svalir sem ekki eru inni í fermetra tölu eignar. Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi, hjónaherbergi ásamt sér geymslu í sameign.Fordæmi eru fyrir þvi í sambærilegum íbúðum að stúka af lítið rými í stofunni sem auka herbergi.Nánari lýsing
Forstofa með harðparketi á gólfi og fatahengi
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi og eldri fataskáp með rennihurðum.
Eldhús með fallegri nýlegri innréttingu á tvo vegu með flísum á milli skápa, innbyggð uppþvottavél og gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu , Whirlpool ofn , keramik helluborð og Whirpool vifta, harðparket á gólfi.
Stofa með harðparketi á gólfi og útgengi út á yfirbyggðar svalir með dúk á gólfi. Hægt að stúka af lítil herbergi af hluta af stofurými.
Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, hvít innrétting með vaski ofaná og efri skáp með speglahurðum, upphengt salerni.
Geymsla er í sameign.
Húsið er klætt og einangrað að utan, gluggar hafa verið endurnýjaðir.
Þak var viðgert árið 2017.
Eldhús og öll tæki var endurnýjað 2017 , einnig parket og innihurðar. Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Á næstunni verður bílaplanið endurnýjað.Húsgjöld eignarinnar eru 20.757 kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, húseigandatrygging.Í sameign er hjólageymsla , sameiginlegt þvottahús , og þurrkherbergi þar sem að húsfélagið er með vélar sem íbúar hafa afnot af. Stutt er í göngustíga sem liggja m.a. út í náttúruparadísina í Elliðarárdal. Í næsta nágrenni er leikskóli, grunnskóli, verslanir, sundlaug, bókasafn, heilsugæsla og önnur þjónusta.
Allar upplýsingar veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is