Vatnsstígur SELD 16-18, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 84 daga á skrá

Verð 93,9
Stærð 112
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 835
Skráð 1.2.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 2008
mbl.is

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Smekkleg og rúmgóð íbúð í lyftuhúsi á besta stað í miðborg Reykjavíkur. Sér stæði í bílakjallra og öll helsta þjónusta og afþreying í göngufæri. Harpa, Laugavegur, Sundhöllin og að sæ með fallegu útsýni að Esju.

Lýsing eignar: Forstofa parketlögð og með skáp.
Eldhús er samliggjandi við stofu opið með góðu skápaplássi, efri og neðri skápum og skúffum. Eyja með spanhelluborði, háfur þar fyrir ofan og góðu skúffuplássi. Ofn í vinnuhæð og gott borðpláss þar sem lagður hefur verið grár kvartsteinn. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með í kaupum. 
Stofa er í opnu rými við eldhús, parketlögð og björt. Úr stofu er útgengi á vestur svalir með útsýni að nærumhverfi og að sæ til norðurs. 
Svefnherbergi parketlagt og með skápum.
Baðherbergi flísalagt gólf, rúmgóð baðinnrétting, neðri skápar og skúffur, vaskur innbyggður í borðplötu. Efri speglaskápar og lýsing undir skápum.Baðkar, innangengt í flísalagða rúmgóða sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn. 
Þvottahús innan íbúðar á gangi við eldhús, flísalagt, gott borðpláss og vaskur. Þvottavél getur fylgt með í kaupum.
Íbúðin er öll parketlögð nema votrými en þar eru flísar.
Íbúðin var heilmáluð, loft og veggir fyrir tveimur árum og skipt um gólflista.

Geymsla í kjallara hússins.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Bílastæði sér í bílakjallara. Komin er tenging við stæði fyrir hleðslubox.
Sameiginleg bílastæði eru við húseign.

Góð, snyrtileg og björt eign á vinsælum stað í miðborginni.

Allar upplýsingar veita: Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is og Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is 
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501. 

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18