Hraunhóll, 801

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1691 dag á skrá

Verð 49,9
Stærð 221
Tegund Einbýli
Verð per fm 225
Skráð 16.5.2015
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 2004
mbl.is

Hraunhóll, 801 Rangárþing ytra (Landssveit) úr landi Minni-Valla. Einbýlishús (lögbýli) auk skemmu merkt bílageymsla og dæluhús á 26,2 ha landi. Frábær aðstaða fyrir hestamenn eða fyrir ferðaþjónustu. Í gegnum landið rennur Minni-Vallalækur. Fasteignaland kynnir: Fallegt einbýishús úr landi Minni-Valla í Landssveit. Eignin er á 26,2 ha eignarlandi með glæsilegu útsýni. Um er að ræða einbýlishús sem er skráð 63,8 fm og var byggt árið 2004. Einnig er á landinu 5,5 fm dæluhús byggt 1974 auk 152 fm skemmu sem er skráð bílageymsla. Skemman er á byggingarstigi 2 og matstigi 2 og er ekki fullgerð. Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og góðu fatahengi. Geymsla er inn af forstofu með dúk á gólfi. Þrjú herbergi með parketi á gólfi. Hjónaherbergi er með góðu skápaplássi. Baðherbergi með flísum á gólfi, innréttingu og sturtuklefa. Eldhús og stofa saman í stóru opnu rými með góðri lofthæð og stórum gluggum. parket gólfi, kamina og útgengi út á verönd. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og sambyggðri eldavél og uppþvottavél. Húsið er viðhaldslítið, klætt með standandi bárujárni.  Mögulegt er fá búslóð með í kaupum á eigninni. Stór sólpallur með skjólgirðingu. Gert er ráð fyrir heitum potti á sólpalli. Í þessu húsi er hitakútur fyrir neysluvatn og rafmagnofnar. Við íbúðarhúsið er yfirbyggt grillskýli. Landið er 26,2 ha. hentar vel fyrir hestamenn eða fyrir ferðaþjónustu. Glæsilegt útsýni og fjallasýn. Upplýsingar gefur: Heimir H. Eðvarðsson s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is   Fletta í fasteignalista