Hringhamar 9-11 íb. 602, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var tekin út samdægurs

Verð 84,9
Stærð 100
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 847
Skráð 15.4.2024
Fjarlægt 16.4.2024
Byggingarár
mbl.is

LIND Fasteignasala kynnir: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Hringhamar 9-11 í nýju hverfi í Hamranesi í Hafnarfirði. Íbúðirnar afhendast fullbúnar og flestar án gólfefna. Allar íbúðir er búnar með sérstöku loftræstiskerfi. Umframgæði sem 
tryggja mjög góð loftskipti og góða nýtingu á varma. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.

AFHENDING JÚNÍ/JÚLÍ 2024

// VILDARKORT LINDAR //

Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.

Íbúð 602: 100,2 fm 4ra herbergja íbúð á efstu hæð ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin er 92,7 fm ásamt 7,5 fm geymslu og sér þvottahúsi. ATH. Aukin lofthæð og afhendist MEÐ parketi.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.hringhamar.is

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
HRAFN VALDÍSARSON Í S: 845-9888 / HRAFN@FASTLIND.IS
KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS
HANNES STEINDÓRSSON Í S: 699-5008 / HANNES@FASTLIND.IS

Gólf íbúða eru fleytt og tilbúin fyrir endanlegt gólfefni, nema í baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.

Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.

Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft

Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.

Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.

Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu 
geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu

Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.
Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
HRAFN VALDÍSARSON Í S: 845-9888 / HRAFN@FASTLIND.IS
KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS
HANNES STEINDÓRSSON Í S: 699-5008 / HANNES@FASTLIND.IS

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.- með vsk. 
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20