Túngata 11, 245
Fjarlægð/Seld - Eignin var 2 daga á skrá
Verð |
32,4
|
Stærð |
109
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
297
|
Skráð |
11.11.2018 |
Fjarlægt |
13.11.2018 |
Byggingarár |
1952 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Túngötu 11, 245 Sandgerði.
Um er að ræða skemmtilegt og notalegt 4ja herbergja einbýlishús með bílgeymslu.
Húsið 109,1 m2 þar af er íbúðin 80 m2 og bílgeymslan er 29,1 m2.
Húsið er mikið endurnýjað m.a. nýir gluggar og gler, neysluvatns-, hitalagnir og frárennslislagnir ofl.
Lýsing eignar.
Anddyri með flísum á gólfi, hengi.
Þvottahús er innaf anddyri með máluðu gólfi, lúga uppá stórt geymslurými í þaki, ný stigi uppá geymsluloftið.
Hol með plastparketi á gólfi,
Eldhús með flísum á gólfi, ágætis innrétting og tæki, góður borðkrókur er í eldhúsinu.
3 svefnherbergi með plastparketi á gólfi, góður fataskápur í einu.
Baðherbergi með flísum á gólfi, ný innrétting og tæki.
Stofa með plastparketi á gólfi, hurð út á stóra afgirta verönd.
Bílgeymsla er nýlega klætt að hluta að utan, steypta gólf, rafmagn er í skúrnum.
Stór afgirt lóð fylgir húsinu. Plan er með möl.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 50, sími 420-4050.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 40.000 með vsk, sbr. kauptilboð.