Faxafen 10, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 2.292
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 19.2.2020
Fjarlægt 22.2.2020
Byggingarár 1987
mbl.is

RE/MAX Senter fasteignasala kynnir: Glæsilegt atvinnuhúsnæði á góðum stað í Faxafeni 10, 108 Reykjavík.   Í húsnæðinu var áður rekinn menntaskóli og skiptist húsnæðið í 16 stórar og rúmgóðar skólastofur. Í miðrými er bjart og stórt miðrými með kaffiaðstöðu.  Heimilt er að breyta húsnæðinu í gistiheimili eða hótel.  Laust við kaupsamning.

Samkvæmt þjóðskrá er húsnæðið skráð 1.668 fm. en með breytingum sem gerðar hafa verið er húsnæðið 2.292 fm. 

Nánari lýsing: 
Til norðurs og suðurs eru tveir inngangar, hjólastólalyfta í suðurenda.  Við aðalinngang í norður er afgreiðsla, eldhús, borðstofa og snyrtingar ásamt 3-4 skrifstofum/fundarherbergjum.  Hringstigi er uppá rishæð þar sem eru þrjár stórar geymslur.  Í suðurenda hússins er einnig móttaka, 4-5 skrifstofur, snyrtingar og hringstigi uppá risloft þar sem er eldhús, kaffistofa,geymslur og rými með þakgluggum.
Sprinkler kerfi er í húsnæðinu, dúkur á gólfum.

Fullbúið húsnæði fyrir skólastarfsemi á besta stað.  Möguleiki að breyta húsnæði í gistiheimili,  hótel eða skipta húsnæðinu upp í minni útileigueiningar fyrir skrifstofur eða námskeiðahald.   Hagstæð lán hvíla á eigninni sem hægt væri að taka yfir.

Allar nánari upplýsingar veita Guðrún Lilja Tryggvadóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 867-1231 / gudrunlilja@remax.is og Gunnar Sverrir Harðarson, löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9