Verð | 79,9 |
Stærð | 121 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 662 |
Skráð | 22.9.2022 |
Fjarlægt | 7.10.2022 |
Byggingarár | 1986 |
mbl.is |
Inngangur íbúðar leiðir inn í alrými sem er flísalagt með dökkgráum náttúruflísum. Til hægri eru tvö svefnherbergi með fataskápum. Rúmgóðar suðaustur-svalir úr hjónaherberginu sem vísa í átt að bakgarði. Nýlegt harðparket á gólfum í svefnherbergjum. Baðherbergi með upphengdu WC, hvítri innréttingu og sturtu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Hol við hlið baðherbergis sem hægt er að nýta sem skrifstofu eða sjónvarpshol. Eldhús er opið með L-laga eldhúsinnréttingu með útsýni til norðurs. Í eldhúsinnréttingu er ísskápur og uppþvottavél og innbyggður frystiskápur. Rúmgóð stofa / borðstofa og þaðan er gengið út á norðvestur-svalir með útsýni.
Skemmtilega skipulögð og björt þriggja herbergja íbúð með nýuppgerðu baðherbergi, svefnherbergi parketlögð 2021, sameign nýlega teppalögð. Tvö sameignleg bílastæði við húsið eru með hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Allar nánari upplýsingar gefur Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is