Gerplustræti 21, 270
Fjarlægð/Seld - Eignin var 41 dag á skrá
Verð |
56,9
|
Stærð |
115
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
493
|
Skráð |
13.8.2020 |
Fjarlægt |
23.9.2020 |
Byggingarár |
2020 |
mbl.is |
|
Borg Fasteignasala kynnir glæsilegar, íbúðir í nýju fjölbýlishúsi við Gerplustæti 21-23 ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðirnar skilast fullbúnar með vönduðum innréttingum og eldhústækjum en án gólfefna.
Gerplustræti stendur í fallegu umhverfi í Helgafellslandinu á frábærum útsýnisstað en allar íbúðirnar afa rúmgóðar svalir sem snúa í suður með frábæru útsýni. Við hönnun hússins og innra skipulags íbúðanna var horft til þess að nýta rými sem best en tryggja á sama tíma gott birtuflæði með tilliti til staðsetningar og útsýnis.
Um er að ræða 3ja herbergja 103,6 fm íbúð á þriðju hæð merkt 02-0301 með stæði í bílageymslu merkt 03-B08. Sér geymslu (11,7 fm) í sameign ásamt rúmgóðri vagna- og hjólageymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol með fataskáp
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sérsmíðaðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgóður sturtuklefa, upphengt klósett og innrétting við vask.
Stofan/borðstofan er opin og björt með stórum gluggum og útgengi út á suður svalir.
Eldhúsið er í opnu rými með vel skipulagðri innréttingu og glugga til suðurs, innbyggðum ísskáp og uppþvottarvél, helluborð og háfur .
Hjónaherbergið ermeð rúmgóðum skáp og glugga.
Svefnherbergi I er með skáp.
Svefnherbergi II er með skáp.
Húsin við Gerplustræti 21-23 eru 4ra hæða staðsteypt lyftuhús með 11 íbúðum hvort, 2-5 herbergja. Stærð íbúða er frá 81-158 fm. Innréttingar eru frá Ormson, tæki frá AEG, flísar frá Flísabúðinni. Hefðbundið ofnahitakerfi, flísar á baðherbergjum/þvottahúsi. Innveggir eru hlaðnir steypu-steini (Lemga). Húsin eru að mestu klædd viðhaldléttri klæðningu, gluggar eru ál/timbur. Sameign er fullfrágengin að utan sem innan og lóð full frágengin.
Nánari upplýsingar/skilalýsingu er að fá hjá sölumanni, sendið fyrirspurn á Þóru Birgisdóttur í thora@fastborg.is eða í síma 777-2882
Glæsileg íbúð í nýju fjölbýlishúsi efst í Helgafellslandinu með lyftu og bílakjallara, stutt er í matvöruverslun, skóla, leikskóla og sund.
Myndir kunna að vera úr annari eign en þeirri sem hér er kynnt (úr Gerplustræti 17-19) en gefur til kynna lit /karakter innréttinga.
Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af brunarbótamati þegar það liggur fyrir.
Bygginganefnarteikningar gilda komi upp misræmi í teikningum eða málum.