Vefarastræti 40, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá

Verð 47,9
Stærð 98
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 490
Skráð 18.5.2020
Fjarlægt 23.5.2020
Byggingarár 2018
mbl.is

RE/MAX Senter kynnir í einkasölu Vefarastræti nr. 40-44. Um er ræða 32 íbúða fjölbýlishús í Mosfellsbæ, nánar tiltekið í suðurhlíðum Helgafells, á skjólgóðum og sólríkum stað eins og flestar lóðir í hverfinu sem liggja í suður- og vesturhlíðum Helgafells.  Vefarastræti 40-44 er eins og önnur fjölbýlishús í hverfinu, skipulagt innan svokallaðs "auga" sem dregur nafn sitt af lögun svæðisins og liggur nálægt miðju hverfisins. Skipulag hverfisins er nútímalegt og mjög fjölskylduvænt, með góðum grunnskóla og tveimur leikskólum sem staðsettir verða í auganu í miðju hverfisins. Útsýni úr íbúðum Vefarastrætis 40-44 er einstaklega fallegt.

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupóst á netfangið gulli@remax.is

Íbúð 0103 við Vefarastræti 40, er 92,3 fm fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð ásamt 5,5 fm geymslu í kjallara merkt 0002 og bílastæði merkt B04 í bílageymslu. Birt stærð samtals 97,8 fm. Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna að undanskyldum votrýmum og anddyri íbúða sem,eru flísalögð, sjá nánar í skilalýsingu seljanda.

Innréttingar, skápar og hurðir:  Innréttingar eru hannaðar af dap arkitektum og sérsmíðaðar frá Formus. Eldhúsinnrétting og fataskápar eru með dökkri viðarharðklæðningu (Egger) með mattri áferð, möguleiki er á innbyggðri uppþvottavél með framhlið úr sama efni. Innfelld lýsing er undir efriskápum. Borðplata í eldhúsi er hvít af gerðinni CHPL ( Compact High Pressure Laminate) með undirlímdum vaski frá Franke. Baðinnréttingar eru hvítar sprautulakkaðar MDF með mattri áferð. Borðplata á baði er hvít af gerðinni HPL (High pressure Laminate). Allar brautir og lamir eru með ljúflokun frá Blum. Innihurðir eru 2,1m háar, yfirfelldar og hvítlakkaðar frá Ebson.

Heimilistæki: Heimilistæki, þ.e helluborð, bakaraofn og háfur með kolasíu, eru frá Electrolux eða sambærilegum viðurkenndum framleiðanda

Vefarastræti 40 : Tilbúið til afhendingar 

Nánar um skipulag á íbúð 0103, Vefarastræti 40:
Inngangur/anddyri með fataskáp og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er með fataskápum.
Tvö barnaherbergi með fataskápum.
Baðherbergi er með gólfhita og handklæðaofni, flísalagt að hluta með innréttingu og handlaug ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni og sturta.
Eldhús er með L-laga innréttingu og er opið inn í stofu með útgengi þaðan út á sérafnotaflöt íbúðar.

Myndir eru frá sýningaríbúð 208 á Vefarastræti 44. Varðandi sýningaríbúð, þá fylgir ekki með íbúðum spegill á baði, sturtugler, parket, ísskápur, uppþvottavél, þvottavél og þurrkari. Sýningar húsgögn koma frá húsgagnahöllinni (ásamt ljósi í eldhúsi). Önnur ljós koma frá Lampar.is

Sjá nánar inn á vef:  http://vefarastraeti.is

Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli i sima 661-6056 / gulli@remax.is löggiltur fasteignasali
Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 arg@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.-

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25