Eskiás 1G Íb. 305, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 85,9
Stærð 103
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 836
Skráð 31.5.2022
Fjarlægt 2.6.2022
Byggingarár 2022
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Eskiás 1G, íbúð 03-05 er 102.8 fm 5 herbergja íbúð í nýju litlu fjölbýli á mjög góðum stað í Garðabæ. Bókið skoðun hjá ***Þórarni í síma 899-1882 eða Kára í síma 899-8815 ***. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar fyrir utan megingólfefni en flísar á baðherbergjum/þvottahúsi. Vandaðar innréttingar. Sérinngangur í allar íbúðir. Geymslur innan íbúðanna. Afhending í október 2022
Smellið hér til að sækja söluyfirlit.


Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 102.8 fm, með geymslu sem er innan íbúðarinnar. Bílastæði eru á lóð og gert er ráð fyrir nokkrum fjölda hleðslustæða. Svalir eru út frá stofu íbúða á efri hæðum.  Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð.
Íbúðin skiptist í :forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 4 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla er innan íbúðarinnar og sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.

Afhending: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. 
Innréttingar og hurðir: Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir verða hvítlakkaðar yfirfeldar hurðir (Jeld-Wen Moralt).
Baðherbergi/þvottahús: Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
Heimilistæki: Eldhús skilast með blástursofni, spanhelluborði og innbyggðum ísskáp frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum. Vifta með kolasíu er í efri skápum yfir helluborði en þar sem að helluborð er staðsett á eyju eða tanga er einungis gert ráð fyrir möguleika á að bæta við viftu.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe. Á baðherbergjum eru tækin krómlituð en í eldhúsi eru vaskur og blöndunartæki svört 
Gólfefni:Íbúðum verður skilað með flotuðum gólfum án gólfefna nema á baðherbergjum/þvottahúsi þar sem að veggir og gólf eru flísalögð upp í loft.  
Slökkvitæki og reykskynjari fylgja hverri íbúð. Dyrabjalla og póstkassi er við hvern sérinngang.
Frágangur utanhúss: Útveggir verða einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni.Svalahandrið eru úr stáli klætt lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum.
Frágangur lóðar: Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Leiksvæði. 
Rafbílahleðsla: Gert verður sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að eignirnar verði afhentar í október 2022
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
Ath. innimyndir eru tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar, nánar um skil sjá skilalýsingu.
Getið einnig bókað skoðun hjá öðrum sölumönnum Eignamiðlunar.

Þórarinn M. Friðgeirsson lögg.fs sími 899-1882, thorarinn@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson lögg fs sími 867-0968, unnar@eignamidlun.is
Bjarni T.Jónsson lögg fs sími 895-9120, bjarni@eignamidlun.is
Brynjar Þór Sumarliðason sími 896-1168, brynjar@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson lögg fs sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Herdis V. Hölludóttir lögg fs sími 694-6166, herdis@eignamidlun.is
Ragnhildur Anna Gunnarsdóttir sími 861-1197, ragnhildur@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir í námi til lögg.fs. sími 649-3868, lilja@eignamidlun.is
Ólafur H. Guðgeirsson lögg fs sími 663-2508, olafur@eignamidlun.is 

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðinum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11