Bergstaðastræti 86, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 126 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 290
Tegund Einbýli
Verð per fm
Skráð 11.10.2018
Fjarlægt 14.2.2019
Byggingarár 1933
mbl.is

Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir virkilega fallegt, vandað og algjörlega endurnýjað um 260,0 fermetra einbýlishús á þremur hæðum auk um 36,0 fermetra bílskúrs og 15,0 fermetra garðhýsis á eftirsóttum stað í Þingholtunum.  Í kjallara hússins er aukaíbúð með tveimur svefnherbergjum, fataherbergi, stofu, eldhúskrók og tveimur baðherbergjum. 


Húsið er allt nýlega endurnýjað á mjög vandaðan og smekklegan máta, bæði að innan sem utan.  Skipt var um allar lagnir í húsinu, þ.m.t. raflagnir og töflur, neysluvatnslagnir, settur gólfhiti í allt húsið, skipt um klóaklagnir undir húsi og út í götu og drenlagnir endurnýjaðar.  Gólfefni eru öll ný og vönduð, flísar frá Villeryoy & Boch og gegnheilt 22mm hnotuparket.  Allar innihurðir eru massívar og með vönduðum læsingum og húnum.  Eldhúsinnréttingar eru sérinnfluttar og vandaðar og tæki í eldhúsi eru öll af vandaðri gerð frá Siemens, þ.m.t. innbyggð uppþvottavél, innbyggður tvöfaldur ísskápur og mjög stór eldunartæki með gashelluborði með 5 hellum og stórum blástursofni. 


Öll blöndunartæki í baðherbergjum eru af mjög vandaðri gerð úr póleruðu Nikkeli frá Samuel Heath og vaskar, wc og flísar frá Villeroy og Boch.  Mjög vönduð tæki frá Siemens eru í eldhúsi, m.a. innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur auk stórra eldunartækja með gashelluborði og vönduðum háfi yfir.  Gólfefni í húsinu er annarsvegar mjög vandaðar flísar og hinsvegar gegnheilt mjög vandað parket úr hnotu.
 

Að utan er húsið allt endurnýjað, viðgert og steinað uppá nýtt með hvítum marmarasalla. Þak var einangrað uppá nýtt og sett nýtt stallað stál á það.  Allt gler og allir gluggar í húsinu eru nýir.


Lóðin er fullfrágengin á afar vandaðan hátt með skjólveggjum, hellulögðum veröndum, 3x bílastæðum, heitum potti og fallegri lýsingu.  Bílskúr, sem hefur verið stækkaður, er með aðkomu frá Bergstaðastræti.


Eignin skiptist þannig:
Á aðalhæð hússins eru forstofa, forstofuherbergi með miklum fataskápum, gestasalerni, hol, glæsilegar samliggjandi stofur með nýjum arni og útgengi á svalir og þaðan niður á lóð auk rúmgóðs eldhúss, sem er með mjög vönduðum innréttingum og tækjum og er opið við borðstofu.
Á efri hæð hússins, sem gengið er á um mjög fallegan steyptan stiga eru stórt herbergi, stórt baðherbergi með þvottaherbergi í og um 50,0 fermetra hjónasvíta, sem samanstendur af stóru svefnherbergi, fataherbergi með setustofu og vönduðu baðherbergi. Úr hjónasvítu er útgengi á svalir til suðvesturs.  Auðvelt er að gera eitt herbergi til viðbótar á efri hæð hússins þannig að þau verði þrjú.
Í kjallara, sem bæði er innangengt í úr forstofu aðalhæðar og er einnig með sérinngangi af baklóð eru lítið eldhús, rúmgóð og björt stofa með útgengi á lóð og tvær svítur, sem báðar eru með baðherbergjum innaf auk þess sem fataherbergi er líka innaf annarri.

Bílskúr er með hita, rafmagni, rennandi heitu og köldu vatni, gluggum, göngudyrum og breiðum innkeyrsludyrum með rafmagnsopnara. Gólf í bílskúr er flísalagt.

Staðsetning eignarinnar: er virkilega góð á afar eftirsóttum stað í Þingholtunum á hornlóð sem rúmt er um og þrjú bílastæði eru á lóðinni auk hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Hitalagnir eru undir hellulögðum bílastæðum á lóðinni.

Allar nánari upplýsingar og tímapanktanir fyrir skoðun eignarinnar veittar hjá Guðmundi Th. Jónssyni, lögg. fasteignasala, í síma 570-4500 eða í netfanginu gtj@fastmark.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50
Mynd 51
Mynd 52
Mynd 53
Mynd 54
Mynd 55
Mynd 56
Mynd 57
Mynd 58
Mynd 59
Mynd 60
Mynd 61
Mynd 62
Mynd 63
Mynd 64
Mynd 65
Mynd 66
Mynd 67
Mynd 68
Mynd 69
Mynd 70
Mynd 71
Mynd 72
Mynd 73
Mynd 74
Mynd 75
Mynd 76
Mynd 77
Mynd 78
Mynd 79
Mynd 80
Mynd 81
Mynd 82
Mynd 83
Mynd 84
Mynd 85
Mynd 86
Mynd 87
Mynd 88
Mynd 89
Mynd 90
Mynd 91
Mynd 92
Mynd 93
Mynd 94
Mynd 95
Mynd 96
Mynd 97
Mynd 98
Mynd 99
Mynd 100
Mynd 101
Mynd 102
Mynd 103
Mynd 104
Mynd 105
Mynd 106
Mynd 107
Mynd 108
Mynd 109
Mynd 110
Mynd 111
Mynd 112
Mynd 113
Mynd 114
Mynd 115
Mynd 116
Mynd 117
Mynd 118
Mynd 119