Reykjastræti 7, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá
Verð |
156,0
|
Stærð |
132
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
1.185
|
Skráð |
4.5.2024 |
Fjarlægt |
10.5.2024 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
Betri Stofan og Jason Kristinn fasteignasali sími
775 1515 kynnir:
131,6 fm útsýnisíbúð á næst efstu hæð við Austurhöfn, sem er í hjarta miðbæjarins í Reykjavíkurhöfn.
Sérmerkt stæði í bílakjallara með grunntengingu fyrir hleðslustöð.
Einstök íbúð á einstökum stað í næsta nágrenni við Hörpu.
Húsgögn geta fylgt með.
Íbúðin er á 5. hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og fallegan inngarð Austurhafnar, sem er lokaður garður.
Fyrir framan íbúð er lokað rými sem nýtist sem
aukaforstofa og er ca 4 fm en er ekki í skráðum fm.
Komið er inn í rúmgóða
forstofu með miklu skápaplássi þaðan er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju.
Útgengt er á
tvennar svalir sem snúa annars vegar í austur með útsýni til
Hörpu og svo vestursvalir í inngarð með seinni parts sól.
Baðherbergi með sturtu, baðkari og rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergið er mjög rúmgott og er með fataherbergi, hægt er að breyta hluta af stofu í svefnherbergi nr. 2
Sérsmíðaðar innréttingar með þykkari spón frá ítalska fyrirtækinu
Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum.
Kvarts steinborðplötur við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju er klætt marmaraflísum.
Afar vönduð tæki í eldhúsi frá
Miele og
Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, frystir, vaskur og blöndunartæki.
Snjallheimiliskerfi til að stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Íbúðin hefur aðgang að bílstæði í bílageymslu, merkt B85. Hægt er að aka í kjallarann frá höfninni einnig er hægt að keyra í bílageymslu úr innkeyrslu Hörpu og einnig frá Hafnartorgi.
Íbúðirnar eru vel staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.