Reykjastræti 7, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 130
Tegund Fjölbýli
Verð per fm
Skráð 28.1.2023
Fjarlægt 3.2.2023
Byggingarár 2019
mbl.is

Miklaborg kynnir: Austurhöfn er glæsileg bygging einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Í engu er til sparað, í innréttingum, tækjum eða frágangi innan sem utan. Skjólgóður aðgangsstýrður garður er rammaður inn af byggingunni og hefur íbúðin sérafnotarétt í þeim garði en einnig eru svalir sem snúa í austur. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í í aðgangsstýrðri bílageymslu. Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 691-1931 eða ohb@miklaborg.is

Íbúð 213 er á 2. hæð. Góður sérafnotaflötur er inn í lokaðan garðinn til  vesturs og er opinn líka mót suðri  og svalir eru til austurs.  Gengið er bæði út í garðinn og  svalirnar úr opinni og stórri  stofu sem nær í gegn sem gefur góða birtu. Í íbúðinni er eitt rúmgott svefnherbergi með fataherbergi inn af og mjög rúmgott baðherbergi. Íbúðin er skráð 113,3  fm og því til viðbótar er 16,2 fm geymsla. Gólfhiti er í íbúðinni. Eigninni fylgir  sérmertkt stæði í aðgangsstýrðri bílageymslu, sem einungis er ætluð íbúðareigendum í Austurhöfn.

Á vefsvæði Austurhafnar http://austurhofn.is er að finna upplýsingar um allt er viðkemur byggingu og umhverfi. Íbúðin er afhent fullbúin án gólfefna utan baðherbergis, sem eru flísalagt. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og er klætt marmaraflísum. Tæki eru af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í íbúðinni, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.

Með íbúðum við Austurhöfn hafa ný viðmið verið sett í gæðum á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931- ohb@miklaborg.is
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12