Lautasmári 49, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 35 daga á skrá
Verð |
49,9
|
Stærð |
108
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
462
|
Skráð |
15.6.2018 |
Fjarlægt |
20.7.2018 |
Byggingarár |
1993 |
mbl.is |
|
*** EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING***
Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög rúmgóð, björt og vel skipulögð 5 herb íbúð á 2.hæð í góðu fjölbýli í Smárahverfi Kópavogs. Um er að ræða eign sem er skráð 107,9fm, svefnherbergin eru 4 og öll með fataskápum. Gluggar í 3 áttir og eignin mjög björt og falleg. Staðsetningin er frábær þar sem göngufæri er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og alla þjónustu í Smáralindinni. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir lögg.fasteignasali/sölustjóri gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í forstofu með fjórföldum fataskáp og linoleum dúk á gólfi.
Eldhús: eldhúsið er með hvítri/beyki innréttingu með gráum borðplötum. Keramikhelluborð, vifta og stálofn. Tengi er fyrir uppþvottavél og og góður borðkrókur er við glugga.
Stofa: stofan er rúmgóð og rúmar einnig borðstofu. Útgengt er á suður svalir frá stofunni. Linoleum dúkur er á gólfi og stórir gluggar. Opið inní eldhús frá stofu.
Baðherbergi: baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Baðkar með sturtuaðstöðu er á baðherberginu og hvít hreinlætistæki.
Svefnherbergi: svefnherbergin eru 4 öll með fataskápum og linoleumdúk á gólfum.
Þvottahús:
Geymsla: í sameign er sér geymsla sem fylgir eigninni með hillum og einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Niðurlag: Þetta er virkilega vel skipulögð og björt íbúð á frábærum stað í Smárahverfi Kópavogs.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir lögg.fasteignasali/sölustjóri gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is