Móstekkur 22, 800

Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá

Verð 79,5
Stærð 177
Tegund RaðPar
Verð per fm 449
Skráð 4.11.2022
Fjarlægt 18.11.2022
Byggingarár 2022
mbl.is

RE/MAX & Bjarný Björg Arnórsdóttir viðskiptafræðingur / aðstoðarmaður fasteignasala & Sveinn Gíslason Lgf kynnir:
Fallegt og vel skipulagt 4 herbergja raðhús á einni hæð. Fjögur hús eru í lengjunni, og er um miðju raðhúsið að ræða sem er 177,2 fm með 34 fm bílskúr. Þetta er nýbyggingu í nýju hverfi á Selfossi þar sem stutt er í skóla. Húsið er timburhús, klætt að utan með ljós gráum flísum og lituðu járni á þaki.

Bókið tíma fyrir skoðun hjá Bjarný Björg Arnórsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala / í lögg.námi í síma 694-2526 / bjarny@remax.is 

Húsið skilast fullbúið að utan og inni eru allir veggir sparlaðir, grunnaðir eina umferð, tilbúnir fyrir fínspörlun og málningar að innan.
Einnig er hægt að fá húsið afhent fullbúið að innan og utan, verð á fullbúnu húsi er 99.500.000 kr.
Húsið er í byggingingu og verður afhent eftir samkomulagi.

Nánari skilalýsing: 
Burðarvirki: Húsið er timburhús sem er klætt með ljós gráum flísum. Öndunnardúkur utan á húsi sem hlífir krossviði. Ál leiðara klæðning og flísar ysta klæðning.
Gólfefni: eignin er afhent án gólfefna, búið að koma fyrir hitalögn og tilbúið undir flotun.
Loft og útveggir: Inni eru allir veggir sparlaðir, grunnaðir eina umferð, tilbúnir fyrir fínspörlun og málningu.Lofthæð í húsinu er extra há 280cm.
Gluggar og hurðir: allir gluggar eru frá Idealcombi úr áli/timbri, vandaðir gluggar í dökk gráum lit Ral 7022 að utan og hvítir að innan. Gler er tvöfalt k-einangrunargler. Útihurðin er extra há 250cm.
Bílskúr: Bílskúrshurð er frá Glófaxa Hörmann í sama lit og gluggar Ral 7022. Extra breið 350 cm og extra há 250 cm. Hermann bilskúrshurða opnarar í skúr. Gólfplata er gróf pússuð með niðurfalli við hurð. Allir veggir og loft eru klæddir með tvöföldu lagi af gipsi. Búið er að ganga frá rafmagnstöflu og hitaveitugrind er frágengin án hitastýringa og nema sem koma síðar í hvert herbergi.
Innveggir: Innveggir eru allir upp komnir samkvæmt teikningu. Þeir eru klæddir beggja megin með tvöföldu gifsi. Þar sem innréttingar koma upp er á flestum stöðum spónaplötur eða krossviður undir festi púntum. Allir veggir eru einangraðir.
Baðherbergi: skilast tilbúið undir flotun gólfa og allir veggir spartlaðir og grunnað eina umferð tilbúið undir fín spartlun og málningu. 
Pípulagnir: Neysluvatnið er rör í rör, þrýsti prófað. Gólfhitalagnir eru í öllu húsinu og bílskúr. Hitagrindur eru tengdar en ekki komið upp stýrikerfi (rafmagn).         
Hitakerfi: gólfhitakerfi er í öllu húsinu og eru hitakistur fyrir allt húsið staðsettar í bílskúr. 
Lýsing: vinnuljós eru tengd í hverju herbergi. Rofar og tenglar fylgja ekki.
Rafmagns- og sjónvarpslagnir: skilast með ídrætti, rofar, tenglar og innstungur fylgja ekki. 
Baklóðin snýr í hásuður og þar er ídráttarrör fyrir heitann pott.
Lóðin er búið að jarðvegskipta og er hún tilbúin undir tyrfingu eða hellulagnir, bílapan er steypt með hitalögn ótengt og steyptum ruslatunnuskýlum.
Við afhendingu fylgir húsbók með tæknilegum upplýsingum, tengiliðum og praktískum atriðum.


Lýsing eignar fullbúin:
Innréttingar eru sérlega vandaðar frá HTH innréttingum eða sambærilegt. 
Eldhúsinnrétting er með slitsterku plast í hvítum lit og viðarlíki. Eldhúsinnréttingin er með innbyggðum ísskáp og gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél.
Vandaðir fataskápar eru í öllum herbergjum með hvítu harðplasti og eru fataskápar í anddyri með viðarlíki.
Innrétting í þvottahúsi er með hvítu harðplasti.
Á baðherbergi er innbyggt vegghengt salerni, sturta er með blöndunartækjum og niðurfallsrist. Baðinnrétting er rúmgóð með viðarlíki.
Afmörkun sturtusvæðis er með gleri. Baðherbergi er flísalagt að hluta með fallegum ljósum flísum.
Hurðar: innihurðar eru hvítar 
Gólfefni: Fallegar flísar á öllu votrými og fljótandi parket á öðrum rýmum.
Íbúðin er hituð upp með ísteyptum gólfhitalögnum.
Baklóðin snýr í hásuður og þar er ídráttarrör fyrir heitann pott.
Lóðin er tilbúin með gras og runna fullbúið. Hellulagt á bakvið hús og bílaplan er steypt með hitalögn og steyptum ruslatunnuskýlum.
Milliveggir úti milli íbúða að sunnanverðu fullbúnir.
Ef kaupendur koma inn í ferlið áður en innréttingar eru pantaðar er hægt að hafa áhrif á litaval. 

Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt.


Nánari upplýsingar gefur :
Bjarný Björg Arnórsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala / í lögg.námi í síma 694-2526 / bjarny@remax.is  eða
Sveinn Gíslason löggiltur fasteignasali í síma 477-7777 / sveinn@remax.is



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14