Brekkuheiði 17, 806

Fjarlægð/Seld - Eignin var 178 daga á skrá

Verð 3,5
Stærð 5.000
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm 1
Skráð 30.10.2023
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár
mbl.is

Erling Proppé & REMAX kynnir vel staðsetta sumarhúsalóð við Brekkuheiði í vinsælu og vel skipulögðu sumarbústaðalandi í Brekkuskógi, Bláskógabyggð, 806 Selfossi. Lóðin er kjarrivaxin í nánd við fallega náttúru. Svæðið er afgirt með símahliði. Heitt og kalt vatn að lóðarmörkum.

Lóðin er 5.000 fm leigulóð.

Tengigjald við heita- og kaldavatnsveitu verður greitt af hálfu seljanda. Veggjald hefur verið greitt. 


Byggingarheimildir: 
Á hverri lóð er heimilt að reisa eitt frístundahús/sumarhús og eitt aukahús. Heildarbyggingarmagn skal miðast við nýtingarhlutfallið 0.03. sem felur í sér að á lóð sem telur 5000 fm/0,5 ha má heildarbyggingarmagn vera 150 fm. Hámarksstærð aukahúss er 30 fm sem telst með í heildarbyggingarmagni lóðar. Ekki má byggja nær árbakka en 50 m. 

- Sjá deiliskipulag frístundabyggðar við Brekkuheiði og Vallárveg ásamt breytingar á nýtingarhlutfalli:

       - Deiliskipulag við Brekkuheiði og Vallárveg
       - Nýtingarhlutfall

Staðsetning:
Frábær staðsetning í um 80 mín. akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Fallegar gönguleiðir í kring, m.a. að Brúarfossi. Í næsta nágrenni er að finna allar helstu náttúruperlur Suðurlands eins og Gullfoss og Geysi og stutt í alla helstu þjónustu s.s sundlaugar í Úthlíð, Laugarvatni, Borg í Grímsnesi og Reykholti. Nokkrir golfvellir eru í næsta nágrenni, m.a. við Geysi, Flúðir, Öndverðanes og Kiðjaberg. Þá er hægt að kaupa veiðileyfi í mörgum vötnum í kring.

Lóðarleigusamningur:
Möguleiki er á því að gera langtíma lóðarleigusamning um lóðirnar. Leigutaki öðlast þá rétt til þess að byggja á lóðunum í samræmi við skipulagsskilmála svæðisins en afla þarf samþykkis leigusala á byggingaverktaka.
-Árgjald landleigu er 136.743,- innheimt í júní ár hvert. Landleiga er undanþegin vsk.
-Grunngjald leigusamnings til 25 ára er 1.990.000,-    

Öll verð eru bundin vísitölu neysluverðs og miðast ofangreind verð við 588,3 stig

Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé, löggiltur fasteignasali í síma 690-1300, erling@remax.is


----------------------------------------------------------------------- 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila  
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati 
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9