Lyngás 1, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 33 daga á skrá
Verð |
79,9
|
Stærð |
114
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
703
|
Skráð |
7.10.2023 |
Fjarlægt |
10.11.2023 |
Byggingarár |
2016 |
mbl.is |
|
Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með tvennum svölum og sérbílastæði í bílageymslu með rafhleðslustöð í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu á mjög góðum stað, miðsvæðis í Garðabæ. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 113,7fm. og þar af er geymsla 8,1fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2024 er kr. 86.300.000.-
Nánar um eignina:
Forstofa með fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús er opið við stofu með góðri innréttingu, eyja sem hægt er að sitja við, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð og parket á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir til vesturs.
Hjónaherbergi rúmgott með fataskápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi III rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir til suðausturs.
Baðherbergi rúmgott með innangengri sturtu með glervegg, góðri innréttingu, efri skápar með speglahurðum, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi með innréttingu með vaski, gert er ráð fyrir vélum í vinnuhæð og flísalagt gólf.
Sérgeymsla með mikilli lofthæð og hillum í kjallara hússins.
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu þar sem búið er að setja upp rafhleðslustöð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, rúmgóð.
Húsið að utan lítur vel út og sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð miðsvæðis í Garðabænum þaðan sem stutt er í Flataskóla, Garðaskóla, íþróttasvæði Stjörnunnar, Sundlaug Garðabæjar, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma
899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is eða Dana Gunnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma
698-1879 eða á netfenginu dana@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.