Heiðarbær 0, 806

Verð 25,0
Stærð 19
Tegund Sumarhús
Verð per fm 1.289
Skráð 7.5.2024
Fjarlægt
Byggingarár 1965
mbl.is 1262057

Palsson Fasteignasala kynnir:

Mjög vel staðsetta 4996 fm útsýnislóð í landi Svínahlíðar við Þingvallavatn.
Um er að ræða sölu á leigulóð með tryggum samningi. Búið er að rífa ónýtt sumarhús sem skráð var 37,2 fm. Við vatnið er 19,4 fm bátaskýli.

Nánari upplýsingar veitir Hörður Sverrisson, lgf í síma 899-5209, hordur@palssonfasteignasala.is


Nánari lýsing:
Lóðin er skráð 3750 fm í fasteignamati leigulóð til 50 ára og var leigusamningur endurnýjaður 2008. Samkvæmt uppfærðum lóðarleigusamningi þá er lóðin 4750 m2. Lóðin er skógi vaxin og með glæsilegu útsýni yfir Þingvallavatn og til fjalla. Lóðin stendur á mjög eftirsóknarverðum stað í Svínahlíð við Þingvallavatn.
 
Lóðarleiga ca kr 65000 á ári. Frá 2007-2017 var framkvæmdabann í Svínahlíðinni en vorið 2017 var því aflétt þannig að heimilt er að byggja um 150 m2 eign á þessari lóð. Teiknað hefur verið nýtt sumarhús á lóðinni. Það var borað fyrir vatni sem félagið á staðnum heldur utan um og er vatn og rafmagn til staðar á lóðinni.
Bústaðnum fylgir bátaskýli við Þingvallavatn sem er í nokkurra mínútna göngufæri frá bústaðnum. Ekki er heimilt að reisa ný bátaskýli við Þingvallavatnið og er einungis hluti sumarhúsa á þessu svæði sem er með bátaskýli. Þetta er því spennandi eign fyrir þá sem vilja njóta útsýnis og vera í hæfilegri fjarlægð frá vatninu, en á sama tíma vera með aðgengi að því með spíttbát, kajaka o.s.fv. í gegnum bátaskýlið.
 
Þessi eign er spennandi kostur í alla staði. Er á eftirsóttum stað við Þingvallavatn, sem er einungis í 20 mínútna fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4