Þvottahúsið Rauðalæk, 851

Fjarlægð/Seld - Eignin var 2547 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 426
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 10.1.2013
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1971
mbl.is

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

ÞVOTTAHÚSIÐ RAUÐALÆK.
Um er að ræða einkahlutafélagið Þvottahúsið Rauðalæk ehf, sem rekur þvottahús, efnalaug og verslun með hannyrðavörur á Rauðalæk í Holtum. Fjöldi starfsmanna er 7 Helstu eignir félagsins eru fasteign á Rauðalæk, vélar og vörulager.

Fasteign:
Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1971 og er 426.3 fm að stærð. Það er múrað og málað að utanverðu og telur: Anddyri og innra anddyri með dúkflísum á gólfum. Eldhús með dúk á gólfi. Skrifstofu með spónaparketi á gólfi. Herbergi, salerni, afgreiðslu og tvo vinnusali með dúkflísum á gólfum. Vélasal með máluðu steingólfi og stórri útihurð. Gang með máluðu steingólfi. Bílageymslu með máluðu steingólfi og stórum innkeyrsludyrum. Geymsluloft er yfir gangi og hluta bílageymslu. Húsið er aðskilið frá sambyggðu húsi með brunavegg. Bifreiðastæði er steypt að hluta og að hlauta lagt bundnu slitlagi.

Vélar og tæki:
10 stk þvottavélar, 5 stk þurrkarar, 3 strauvélar, 2 strauborð, pökkunarvél, buxnapressa, átta vagnar, 3 stálvagnar, skyrtugína, 2 loftpressur, þurrhreinsivél, loftræstikerfi og Nissan sendibifreið.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fannbergs fasteignsölu ehf.

Óskað er eftir tilboðum í eignina.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3