Ásakór 13, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 12 daga á skrá
Verð |
49,4
|
Stærð |
157
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
314
|
Skráð |
4.11.2016 |
Fjarlægt |
16.11.2016 |
Byggingarár |
2007 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala kynnir virkilega glæsilega og vel skipulagða 4-5 herbergja 157,3 m2 enda búð á 4.hæð í lyftuhúsi við Ásakór 13 með stórkostlegu útsýni . Eigninni fylgja tvennar svalir og stæði í bílageymslu. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 149,6m2 og geymslan er 7,7 m2 .
Nánari lýsing.
Forstofan er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp með rennihurðum
Þvottahúsið er mjög rúmgott með flísum á gólfi og snyrtilegri hvítri innréttinfu með skolvaski. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Herbergi með parketi á gólfi og fataskáp með rennihurðum.
Herbergi með parketi á gólfi og rennihurðum.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með gluggum á tvo vegu og stórum fatskáp með rennihurðum.
Sjónvarpsholið er með parketi á gólfi ( auðvelt að breyta í herbergi).
Baðherbergið er mjög rúmgott með flísum á gólfi og veggjum nánast upp í loft. Hornbaðkar og sturta. Falleg hvít innrétting með fallegum spegli með góðri lýsingu. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri innréttingu úr eik og hvítum efri skápum. Flísar á gólfi. Stór eyja sem að hægt er að sitja við með keramik helluborði og viftuháf. Gert er ráð fyrir ísskáp. Innbyggð uppþvottavél.
Borðstofa með flísum á gólfi og útgengi út á rúmgóðar austur svalir.
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar suður svalir.
Geymslan er með lökkuðu gólfi og hillum.
Fyrirhuguð viðgerð á húsi að utan sem felst í múr og málningarvinnu er hafin og eru áætluð verkslok næsta vor. Um samþykkta framkvæmd er að ræða sem seljandi mun greiða.
Í sameign er hjólageymsla og stæði í lokaðri bílageymslu sem að er ekki innangeng frá sameign hússins. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is