Lindargata 37, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 41 dag á skrá
Verð |
55,9
|
Stærð |
83
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
671
|
Skráð |
9.9.2020 |
Fjarlægt |
20.10.2020 |
Byggingarár |
2010 |
mbl.is |
|
RE/MAX Senter kynnir í einkasölu: Glæsileg tveggja herbergja 83,3 fm. íbúð á fyrstu hæð í nýlegu lyftuhúsi við Lindargötu 37. Íbúðin skiptist í forstofu, stofurými með opið inn í eldhús, hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla er í sameign. Íbúð fylgir einnig vel staðsett stæði í bílgeymslu með rafhleðslu. Innréttingar og fataskápar eru íslensk sérsmíði frá Axis. Gólfhiti í íbúð. Mynddyrasími ofl.
Vönduð og vel skipulögð eign, staðsett á góðum og vinsælum stað í Skugganum. Stutt í miðborgarlífið og alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð og með fataskápum.
Stofa er björt og rúmgóð með stórum gólfsíðum gluggum. Flísar á gólfum. Úr stofu er útgengt út á 11,8 fm.
svalir sem eru yfirbyggðar/með gleri.
Eldhús er opið inn til stofu með fallegum innréttingum. Borðplata úr kvarsi. Stáleldhúsvaskur og einnar handar blöndunartæki. Rafræki Miele frá Eirvík. Flísar á gólfum.
Svefnherbergi er með fataskápum og gólfsíðum glugga. Flísar á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt. Upphengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartækjum og sturtubaðkar. Handklæðaofn. Hreinlætistæki frá Tengi.
Þvottahús er innan íbúðar. Hvít vaskinnrétting, flísar á gólfum.
Sérgeymsla 7,5 fm. fylgir íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja, aðstoðarmaður fasteignasala/í lögg.námi í síma 867-1231 / gudrunlilja@remax.is og Gunnar Sverrir Harðarson löggiltur fasteignasali í síma 414 4700.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75
þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.