Laugavegur 39, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 31 dag á skrá

Verð 88,8
Stærð 123
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 720
Skráð 11.3.2024
Fjarlægt 12.4.2024
Byggingarár 1942
mbl.is

Miklaborg kynnir: Glæsilega nýuppgerða, 123 fm, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Laugaveg 39. Sérmerkt bílastæði á baklóð fyrir aftan hús tilheyrir íbúðinni.

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, tvö baðherbergi, annað með þvottaaðstöðu, hol, eldhús/borðstofa með útgengi út á svalir sem snúa í norður. Vönduð eign sem vert er að skoða á besta stað í bænum.


BÓKIÐ EINKASKOÐUN: Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Nánari lýsing: Húsið er endursteinað og hefur fengið gott viðhald. Sameiginlegur inngangur frá Laugarvegi. Fallegur stigagangur er teppalagður og sérsmíðað bogadredið viðarhandrið við stiga. Íbúðin er á 2. hæð: Gengið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp, loftið er klætt með hljóðdempandi plötum í hnotu ásamt innbyggðri lýsingu. Rúmgott svefnherbergi með fataskápum, gluggi í suður, fallegt eikar harðparket er á gólfi ásamt flísarönd. Hurðar og veggpanill er spónlögð hnota sérsmiðað af JPI innréttingum. Stofan er með eikar harðparketi. Veggpanill er í stofu á vegg þar sem gengið er inn á baðherbergi, baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með "walk-in" sturtu og Ifø baðinnréttingu frá Tengi. Gólfhiti er á baðherbergjum. Eldhúsið er með vandaðri innréttingu frá HTH, innbyggðum kæliskáp og uppþvottavél, eldhúseyja er úr límtrésbita með helluborði, flísar eru á eldhúsrými og borðstofa með eikar harðparketi. Frá borðstofu er gengið út á svalir sem snúa í norður. Annað baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með þvottaaðstöðu og Ifø baðinnréttingu frá Tengi. Annað svefnherbergið er með eikar harðparketi og glugga í norður. Snjall rafmagnskerfi er fyrir lýsingu.


Íbúðin: Ný rafmagnstafla er í íbúðinni ásamt nýjum skólplögnum og neysluvatnslögnum frá stofni í íbúð. Búið er að steina allt húsið að utan, 4. hæðir, 8 íbúðir í húsinu, þar af tvö verslunarrými á jarðhæð.

Teikning: fyrirliggjandi teikningar eru ekki í samræmi við núverandi skipulag hússins og eru kaupendur hvattir til að kynna sér það ítarlega.


Sérmerkt bílastæði: á baklóð og þaðan er einnig hægt að ganga inn um sameiginlegan inngang. Eignin er staðsett á göngugötu og veitir því bílastæðið umgengisrétt fyrir bíl. Sameign: vegleg sameign með teppalögðum stigagangi og flísalagðri forstofu. 23,3 fm sérgeymsla í kjallara.


Eftirfarandi viðhald var gert á árunum 2015-2020: Þakplötur endurnýjaðar. Framhlið húss viðgerð og endursteinuð. Bakhlið húss viðgerð og endursteinuð. Ljós sett í alla sameign með snertiskynjurum.


Nánari upplýsingar veitir: Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48