Túngata 3, 245
Fjarlægð/Seld - Eignin var 70 daga á skrá
Verð |
48,3
|
Stærð |
129
|
Tegund |
Hæðir |
Verð per fm |
374
|
Skráð |
4.1.2024 |
Fjarlægt |
15.3.2024 |
Byggingarár |
1950 |
mbl.is |
|
Allt fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgóða efri hæð í tvíbýlishúsi að Túngötu 3 í Sandgerði. Birt stærð eignarinnar er 129 fm af því er 34,7 fm bílskúr.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða efri hæð þar sem stutt er í verslun, skóla og leikskóla. Íbúðin hefur tvö svefnherbergi með möguleika á því þriðja.
Búið er að fara í framkvæmdir á húsinu að utan en það var sprunguviðgert og klætt með álklæðningu 2021, skipt var um járn á þaki 2012. Verið er að steypa kannt í innkeyrslu sem seljandi mun klára.
Nánari upplýsingar veitir:Helga Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali á helga@allt.is
- Baðherbergi tekið í gegn.
- Möguleiki á bæta þriðja svefnherberginu við.
- Rúmgóður bílskúr.
- Vatnslagnir endurnýjaðar í eldhúsi og baðherbergi.
- Stór og góður garður. Nánari lýsing eignarinnar: Anddyri: gengið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi: er nýtekið í gegn, ljósar flísar, innrétting úr ikea, upphengt salerni ásamt baðkari með sturtu, innihurð frá parka. Á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn vantar en hann mun fylgja með.
Herbergi: eru tvö og hafa parket á gólfi, annað þeirra hefur góða opna fataskápa.
Eldhús: hefur hvíta innréttingu. Helluborð, ofn og vaskur eru nýlegt, þarf að flota gólf og setja gólfefni.
Stofa og borðstofa: er samliggjandi. Bjart og rúmgott rými með ljósu parketi á gólfi, þaðan er gengið út á svalir.
Bílageymsla: er 34,7 fm, þar er rafmagn og rafmagnsopnari, enginn hiti. Geymsla er innaf bílskúr.
Eignin skilast í því ástandi sem hún er í.
Fasteignasali mælir með að skoða eignina vandlega. Nánari upplýsingar veitir:
Helga Sverrisdóttir lgf. á helga@allt.is eða í síma 845-5838. ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.500.
Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir, er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.