Bergstaðastræti 81, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 30 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 367
Tegund Einbýli
Verð per fm
Skráð 3.7.2018
Fjarlægt 2.8.2018
Byggingarár 1945
mbl.is

Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Bergstaðastræti 81, fallegt og virðulegt einbýlishús í Þingholtunum sem teiknað var árið 1928 af Guttormi Andréssyni. Árið 1975 var húsinu breytt og það stækkað verulega. Húsið er á þremur hæðum og stendur á fallegri og gróinni lóð, sem er um 800 fm að stærð. Húsið hefur verið töluvert endurnýjað að utan sl. ár. Tilboð óskast.
Nánari lýsing eignar:
Aðalhæðin skiptist í þrjár samliggjandi stofur með parketi og rúmgóða borðstofu með marmaraflísum á gólfi. Úr borðstofunni er gengið út á verönd og þaðan niður í garðinn. Við hlið borðstofunnar er eldhús með eldri innréttingu. Efri hæðin skiptist í hol, þrjú rúmgóð parketlögð herbergi, stofu með mikilli lofthæð, lítið eldhús með eldri innréttingu ásamt snyrtingu með WC og vaski og baðherbergi með baðkari og vaski.
Yfir efri hæðinni er geymsluloft sem gengið er upp í úr holinu. Úr holinu er gengið út á svalir í norðvestur með fallegu útsýni. Jarðhæðin er lítillega niðurgrafin en björt með fullri lofthæð og skiptist í sérinngang og hol/gang, fjögur svefnherbergi/stofur, lítið eldhús og baðherbergi. Einnig er þvottahús og annað baðherbergi. Útgangur er út í garð frá þvottahúsinu. Á jarðhæðinni eru einnig geymslur, bæði að innan og sem gengið er inn í utanfrá. Húsið hefur margskonar nýtingarmöguleika. Auðvelt er að leigja út jarðhæðina og efri hæðina sem séríbúðir eða sem stök herbergi með aðgang að eldhúsi og baði.
Nánari upplýsingar gefur páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 512 3400 og 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.is

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá, sjá t.d. á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50
Mynd 51
Mynd 52
Mynd 53
Mynd 54
Mynd 55
Mynd 56
Mynd 57
Mynd 58
Mynd 59
Mynd 60
Mynd 61
Mynd 62
Mynd 63
Mynd 64
Mynd 65
Mynd 66
Mynd 67
Mynd 68
Mynd 69