Holtsvegur 55, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá

Verð 91,9
Stærð 116
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 793
Skráð 28.11.2023
Fjarlægt 8.12.2023
Byggingarár 2022
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg ný og fullbúin íbúð við Holtsveg 55 í Garðabæ. Íbúð 203 er 4ra herbergja og skráð 115,9fm ásamt 20,7fm suðvestur svölum og stæði í lokaðri bílageymslu merkt B05. Íbúð 203 skiptist í forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 3 svefnherbergi og baðherbergi með aðskyldu þvottarými og geymslu innan íbúðar. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar með gólfefnum. Um er að ræða  17 íbúða lyftuhús með 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðum. Fjórum íbúðum fylgir bílskúr og 5 íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Mjög fallegt hús klætt að utan með flísum og með stórum svölum með glerhandriði og eða veröndum á jarðhæð. Frábært útsýni og göngufæri í skóla, leikskóla og fallega náttúru.
 Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is 


Nánari lýsing: Um er að ræða nýbyggingu við Holtsveg 55 í Garðabæ. Skilalýsing seljanda gildir en í henni kemur meðal annars fram: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum og hurðum frá Parka og harðparketi frágengið á íbúðargólf einnig frá Parka en á votrýmum verða flísar.  Rúmgóðar svalir með glerhandriði eru út frá stofu íbúða á efri hæðum.  Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð. Húsið er hitað með ofnalögnum nema íbúðir á efstuhæð, þar er gólfhiti með anydrít ásteypulagi og lýsing innfelld á efstuhæð.
Raflagnir eru lagðar og skilað með perustæði í öllum rýmum nema á baði og eldhúsi þar er loftljós.
Heimilistæki: Eldavél, háfur og ofn er frá AEG.  Hreinlætistæki: Eru frá Tengi.
Gólf á bað og þvottahúsum eru flísalögð með flísum frá Parka.
Á baðherbergi verður sturta, flísalagður sturtubotn og með sturtuhlið úr gleri þar sem við á. Blöndunartæki eru utanáliggjandi og salerni er upphengt. Þrír veggir á baðherbergjum eru flísalagðir og aðrir veggir í íbúðunum málaðir. Vélknúin loftræsting í aflokuðum rýmum.

Húsbyggjandi: H55 ehf
Aðalverktaki: Verkland ehf
Aðalhönnuður: Kristinn Ragnarsson
Verkfræðihönnun: New nordic Engineering
Raflagnahönnun: Voltorka ehf

Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgöngæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
 Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is 


Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, þegar það verður lagt á. Skipulagsgjald er 0,3% af brunabótamati íbúðar.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 74.900.-

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26