Skipholt 17, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
63,9
|
Stærð |
134
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
478
|
Skráð |
28.9.2020 |
Fjarlægt |
7.10.2020 |
Byggingarár |
1968 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan Bær kynnir: Falleg og rúmgóð 3 herbergja íbúð á tveimur hæðum með rúmgóðum þaksvölum við Skipholt 17, 105 Reykjavík. Göngufæri er í miðbæ Reykjavíkur. Sér inngangur er frá svalagangi.
Nánari lýsing:
Komið er inn í litla forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er falleg snyrting með lítilli ljósri innréttingu og innfelldri handlaug, upphengt salerni og handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf. Eldhús er opið inn í stofu / borðstofu. Dökk U laga innrétting með eyjuháfi, tengt fyrir uppþvottavél, stór gluggi með opnanlegu fagi. Rúmgóð og björt stofa með stóra glugga til suðurs. Úr stofu er stigi upp á efri hæð. Á efri hæð er björt sjónvarpsstofa / setustofa með útgengi út á rúmgóðar suður þaksvalir. Baðherbergi með lítilli innréttingu með innfelldri handlaug, flísalagt í hólf og gólf, tengt fyrir þvottavél, baðkar með sturtu, stór gluggi með opnalegu fagi. Tvö svefnherbergi eru á efri hæð, annað með rúmgóðu fataherbergi. Á gólfum íbúðar er parket á öllum rýmum nema á baðherbergjum og forstofu, þar eru flísar. Á svalargangi við íbúð er sér geymsla eignar. Í sameign er sameiginlegt þvottahús. Um er að ræða fallega og snyrtilega eign steinsnar frá miðbænum.
Nánari upplýsingar eða pöntun á einkaskoðun veita:
Haraldur Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma: 783 1494 og á halli@fasteignasalan.is
Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 og á pall@fasteignasalan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt (en þó breytilegt) 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.