Bjarkarholt 10, 270
Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá
Verð |
68,4
|
Stærð |
118
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
578
|
Skráð |
26.3.2021 |
Fjarlægt |
29.3.2021 |
Byggingarár |
2020 |
mbl.is |
|
Miklaborg kynnir: Aðeins nokkrar glæsilegar og einstaklega vel skipulagðar íbúðir eftir við Bjarkarholt 8-10 (nýbygging f. 50 ára og eldri). Sýnum alla helgina með stuttum fyrirvara, pantið skoðun hjá Jóni Rafni lögg. fasteignasala í síma 695-5520 Friðrik í síma 616-1313 eða Óskar Sæmann sölumaður í síma 691-2312.
Á vef GG verk má sjá nánari upplýsingar um íbúðina, skilalýsingu og nánari kynningu á húsinu.
Íbúðirnar skilast að mestu fullbúnar og eru með stæði í lokaðri bílgeymslu. Fullkomið vélrænt loftræstikerfi er innan íbúðar. Viðhaldslétt klæðning á húsi. Sjálfvirkur opnunarbúnaður í sameign. Vandaðar innréttingar frá GKS í eldhúsi, baðherbergi og fataskápum herbergja og anddyris. Lyfta í stigahúsi. Djúpgámar fyrir sorp. Fullklárað baðherbergi. Tryggðu þér skoðun í dag hjá Jóni Rafni lögg. fasteignasala í síma 695-5520
NÁNARI LÝSING íbúðar 101: Íbúðin nær í gegn frá suður til norðurs og er með veglegri sérverönd. Komið inn í anddyri með fataskápum. Rúmgott forstofuherbergi með góðum skápum. Baðherbergið er með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og þröskuldslausum sturtuklefa. Gluggi er á baðherbergi. Eldhús er með fallegri innréttingu, eldunareyju og útgengt út á 15 fm verönd úr eldhúsi. Eldhús er opið inn í rúmgóða stofu og borðstofu. Úr stofu er gengið út á litlar svalir. Hjónaherbergi er rúmgott og með góðum skápum. Þvottahús með vaski er innan íbúðarinnar. Í kjallara er sér stæði í lokaðri bílgeymslu sem og sér geymsla.
Nánari upplýsingar veita: