Vesturgata 127, 300
Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá
Verð |
91,9
|
Stærð |
205
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
448
|
Skráð |
29.2.2024 |
Fjarlægt |
8.3.2024 |
Byggingarár |
1936 |
mbl.is |
|
***VESTURGATA 127 - AKRANESI***Domusnova og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: 205fm einbýlishús á 3. hæðum. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu sem og borðstofu. 5 svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpsherbergi, þvottahús/baðherbergi og geymslu. Tveir inngangar, í kjallara sem og á miðhæð.KJALLARI:Tröppur niður, teppalagt.
Hol: Parketlagt með góðum fataskáp.
Svefnherbergi: Parketlagt með fataskáp.
Svefnherbergi: Parket lagt með fataskáp. (Nýtt sem geymsla í dag- teppi á parket til að hlífa því)
Þvottahús/baðherbergi: Málað gólf með innréttingu/vask, salerni og sturtuklefa.
Geymsla: ca
8-9fm geymsla með parket á gólfi. (nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi.)
Geymsla: Köld geymlsa undir útitröppum m/ rafmagni.
MIÐHÆÐ:Forstofa: Parketlagt með fataskáp.
Svefnherbergi: Parketlagt með fataskáp.
Hol: Parketlagt.
Stofa/Borðstofa: Parketlagt með útgang úr á suður svalir. Af svölum er stigi niður í garð.
Eldhús: Parketlagt, hvít Ikea innrétting með eyju, helluborð, tveir ofnar, uppþvottavél, ísskápur.
Góður teppalagður tréstígi upp á efri hæð.EFRI HÆÐ:Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með mikilli lofthæð. Parketlagt.
Hjónaherbergi: Parketlagt herbergi með 2 fataskápum. Mikil lofthæð.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi. Parketlagt.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa og hornbaðkari. Innrétting og skápar. Mikil lofthæð.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð sbr: Eldhúsinnrétting, eldhústæki, vaskur og blöndurnartæki endurnýjað (2021). Gólefni endurnýjuð, parket (2021). Innihurðir endurnýjaðar (2021). Sólbekkir endurnýjaðir (2021). Stigar teppalagðir (2022). Gluggar lakkaðir að innanverðu (2021). Ofnar og lagnir yfirfarið (2018). Skipt um hausa á öllum ofnum (2018). Ofnar sprautaðir (2021). Fataskápar endurnýjaðir (2021). Blöndunartæki endurnýjuð á baðherbergi á efri hæðinni, ekki í sturtuklefanum (2021). Tenglar og rofar endurnýjaðir (2021). Gluggar og gler endurnýjað á öllum hliðum nema norðurhlið (suðurhlið 2008 og vestur/austurhlið 2018). Gler í gluggum á suð/vestur hlið í kjallara endurnýjað (2021). Gler í gluggum á suðurhlið á miðhæð endurnýjað (2021). Nýr gluggi, svalahurð og svalir í stofu (2022). Útidyrahurðir endurnýjaðar (2020). Nýlegur varmaskiptir. Kjallari drenaður (ca. 2016). Frárennslið endurnýjað út í götu (2018). Malbikað bílaplan (2018). Stór lóð.
Staðsett stutt frá grunnskóla, íþróttahúsi, fjölbrautaskóla, leikskóla og þjónustu.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s.787-3505 / oliver@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.