Urðarhvarf 8, 203
Fjarlægð/Seld - Eignin var 210 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
2.000
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
|
Skráð |
5.6.2019 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
2010 |
mbl.is |
|
Atvinnueign ehf kynnir til leigu:
Urðarhvarf 8 eitt stærsta skrifstofuhúsnæði landsins. Húsið stendur á útsýnisstað við Elliðaárdal. Urðarhvarf 8 er hagkvæmur kostur fyrir leigjendur, sér í lagi sé tekið tillit til gæða sem húsið hefur uppá að bjóða. Markmiðið með hönnun hússins er að bjóða leigurými sem uppfylla allar helstu kröfur nútímans um þjónustu, tækni og aðstöðu hverskonar. Í boði verða minni rými þó húsið sé einstakur kostur fyrir stórnotendur þar sem umfangsmikil starfsemi kemst fyrir á einum og sama staðnum. Afhending hefst vorið 2020.
Heildarstærð er um 16.500 fm. Útleigurými geta verið frá ca. 250fm, 750fm, 1.200fm, 2.000fm og heil hæð um 2.700fm. Næg bílastæði og gott aðgengi.
Staðsetning er ekki síðri en miðbær Reykjavíkur með tilliti til búsetu starfsmanna á höfuðborgarsvæðinu. Húsið er glerjað að miklu leyti og því nýtur sín vel stórbrotið útsýni yfir Reykjavík, í átt að Esjunni, yfir Elliðavatn og til Bláfjalla.
Staðsetning við Elliðarárdalinn og Elliðavatn býður uppá fjölbreytta útivistarmöguleika í næsta nágrenni. Samnýting á mötuneyti, hjólageymslum, fundarherbergjum, móttöku og annarri fjölbreyttri þjónustu verður í boði fyrir leigjendur húsnæðisins. Urðarhvarf 8 er nýtt húsnæði og hagkvæmur kostur fyrir leigjendur.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veita:
Halldór Már Sverrisson, viðskiptafræðingur, lögg. fasteignasali og leigumiðlari. ísíma
898-5599 eða
halldor@atvinnueign.is
Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is
- Atvinnueignir eru okkar fag -