Bjarkarholt 101, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 2 daga á skrá

Verð 58,9
Stærð 123
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 478
Skráð 27.5.2020
Fjarlægt 29.5.2020
Byggingarár 2019
mbl.is

RE/MAX SENTER KYNNIR: Nýjar íbúðir í hjarta Mosfellsbæjar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna að undanskildum votrýmum.
 
Birt stærð 123,3 m² 
111,9 m² íbúð til hægri á 1. hæð hússins nr. 29 við Bjarkarholt sem er anddyri, 2 herbergi, bað, eldhús og stofa/borðst.  ásamt 11,4 m²  geymslu í kjallara merkt á teikningu 0001. Íbúðinni fylgir bílastæði merkt B201 í matshluta 04

Nánari upplýsingar á vefsíðu hér

Bjarkarholt 25-29 er nýtt fjölbýlishús í hjarta Mosfellsbæjar, eitt þriggja húsa sem mynda samfélag um sameiginlegan inngarð. Staðsetningin er frábær í hinum nýja miðbæ Mosfellsbæjar. Öll þjónusta er innan seilingar, samgöngutengingar góðar og stutt í ýmsa útivistarmöguleika
Í húsinu eru 36 íbúðir þar sem komið er til móts við ólíkar þarfir, allt frá því að vera litlar 2 herbergja íbúðir upp í stórar 5 herbergja íbúðir. Gengið er inn í allar íbúðir frá þremur sameiginlegum stigahúsum. Aðgengi að inngarði er frá anddyri.
Íbúðum á 1. hæð fylgja sérafnotareitir í inngarði en íbúðir á efri hæðum hafa svalir. Allar íbúðir hússins vísa að inngarði, þaðan nýtur útsýnis til Lágafells sem myndar óvenjulega og heillandi umgjörð um garðinn. Lögð er áhersla á að íbúðir njóti birtu og útsýnis eins og best verður á kosið, við hönnun þeirra var notagildi einstakra rýma haft að leiðarljósi.
Þrjár glæsilegar þakíbúðir eru á inndreginni efstu hæð. Þaðan nýtur frábærs útsýnis og íbúðunum fylgja stórar og sólríkar svalir þar sem gera má skjólsælar verandir.
Í öllum íbúðum er aðstaða fyrir þvottavél. Í stærri íbúðum eru þvottahús en í minni íbúðum eru þvottahús aðgengileg innan frá baðherbergjum.
Undir byggingunni er kjallari sem hýsir geymslur íbúða og tæknirými hússins. Stigahúsum fylgja rúmgóðar hjóla- og vagnageymslur. Sorp er staðsett á lóð í djúpgámum.
Ekki er gert ráð fyrir bílastæðum við Bjarkarholt, göturýmið fær þannig aðlaðandi yfirbragð byggðar í miðbæ. Bílastæði koma í bílakjallara og í inngarði þar sem lögð er áhersla á að staðsetning þeirra rýri ekki notagildi garðsins næst íbúðum. Í bílakjallara og við stæði á lóð má koma fyrir hleðslustöðvum rafbíla.
Aðgengi fatlaðra er skv. byggingareglugerð. Allar íbúðir eru aðgengilegar frá forrými með lyftu. Útidyr eru með sjálfvirkum opnunarbúnaði. Halli allra skábrauta er miðaður við hjólastólanotendur.

Myndirnar eru úr sýningaríbúð merkt 203 í húsi númer 29 ásamt tölvuteiknuðum utanhúss myndum.

Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli i sima 661-6056 / gulli@remax.is löggiltur fasteignasali
Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 arg@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.-
 
 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23