Leifsstaðir 152714, 601

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1671 dag á skrá

Verð Tilboð
Stærð 266.634
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 5.6.2015
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1930
mbl.is

Eignamiðlun Akureyar auglýsir til sölu sveitahótelið á Leifsstöðum í Eyjafjarðarsveit Leifsstaðir er áhugaverð jörð þar sem nú er rekið glæsilegt sveitahótel, aðeins í 5 mínútna fjarlægð frá Akureyrarflugvelli. Leifsstaðir eru frá öndverðu býli þar sem lengi var stundaður hefðbundinn búskapur og síðar garðrækt. Í dag er eitt glæsilegasta sveitahótel á landinu, með stórkostlegu útsýni um Eyjafjörð og yfir Akureyri. Á hótelinu eru samtals 13 herbergi, hvert öðru glæsilegra.  - 9 tveggja manna herbergi með sér baðherbergi.  - 3 tveggja manna herbergi með sameiginlegu baðherbergi á gangi.  - 1 eins manns herbergi með sameiginlegu baðherbergi á gangi. Á jarðhæð eru 3 herbergi með sér inngangi og sér baðherbergi. Á jarðhæð er einnig lítil íbúð fyrir staðarhaldara, þvottahús, geymsla og lítið verkstæði. Báðu megin við húsið eru stórir sólpallar þar sem hægt er að njóta góðra veitinga á sumrin, hvort sem aðeins sé verið að spila golf, eða njóta sveitahótelsins. Allan ársins hring er hægt að njóta góðra veitinga á Leifsstöðum, því sveitahótelið er búið veitingasal, með bar, sem getur tekið 56 manns í sæti. Þá er hér einnig fullbúið eldhús. Góð og óvenju falleg aðkoma er að húsinu, en það stendur hátt uppi yfir Kaupangssveit og blasir Akureyri við til vesturs. Í brekkum og hjöllum ofan hótelsins er fullgildur golfvöllur sem búið er að kosta gífurlegum fjármunum til uppbyggingar á. Landslagið við völlinn er einkar glæsilegt sem og völlurinn sjálfur, sem er og vel um hirtur. Talsverður tækjakostur er til staðar til vallarstarfa og er lítið tækjahús á lóðinni fyirr þann búnað. Ofan Leifsstaða er mjög stór trjágarður sem búið er að rækta sl. 5-6 áratugi og e.t.v. lengur. Lækir renna um landið og marka vellina. Sérlega glæsileg aðstaða í fallegu umhverfi. 14 ha land fylgir eigninni, þar sem m.a. hefur verið útbúinn golfvöllur.   Gullið tækifæri til að eignast glæsilegt hótel með góða bókunarstöðu á fallegum stað.   Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Eignamiðlunar Akureyrar, í síma 464-5555, eða á tölvupósti: fasteign@logmennak.is   English: The real estage agency Eignamiðlun Akureyrar, Hofsbót 4, Akureyri telephone: +354-464-5555 has the dream property for you. Leifsstadir is a unique place, a guesthouse and a golf course.  The romantic mountain guesthouse provides an outstanding view over the fjord Eyjafjordur. The newly renovated guesthouse has got 13 guestrooms, 9 double rooms with private bathrooms, 3 double rooms and one single room with a shared bathroom. All the bedrooms are beautifully furnished and decorated and include all the facilities a modern guesthouse requires keeping its customers satisfied. The estate includes the guesthouse, an elegant restaurant for 56 people with a professional kitchen, a laundry with all the necessary equipment, a par 3 course, 9 hole golf course and the machinery needed to care for the golf course in a proper manner. The house has an ample storage space throughout and an integrated workshop with direct entry to the home. The lower floor includes a big bedroom, a new bathroom, laundry room and entry to the guesthouse laundry room. Even though you can enjoy the great mountain view, peace and quiet you have also the security of a county maintained road to your driveway. Leifsstadir is located just minutes from the nearest town, Akureyri. Leifsstadir is at an affordable price without compromising on quality, style or live ability. A must see! For further information contact our real estage agents at Eignamiðlun Akureyrar, on telephone +354-464-5555, or email: fasteign@logmennak.is Fletta í fasteignalista