Húnabraut 16, 540

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1545 daga á skrá

Verð 20,6
Stærð 216
Tegund Einbýli
Verð per fm 95
Skráð 9.10.2015
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1959
mbl.is

Domus fasteignasala á Blönduósi s. 440 6170, kynnir gott einbýlishús á Blönduós.Tveir sólpallar við húsið og stór lóð. Nánari uppl. hjá Magnúsi í s 664 6028 magnus@domus.is

  Einbýlishúsið að Húnabraut 16 var byggt 1959 en klætt að utan fyrir allmörgum árum. Húsið hefur fengið gott viðhald og endurnýjun og er því góð eign. Húsið stendur við aðalgötu bæjarins og þaðan er stutt í alla þjónustu. Þetta er eign, sem gefur mikla möguleika

Komið er inn á neðri hæð hússins. Þar er komið inn í forstofu en auk þess er á hæðinni 3 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Þar er einnig stórt þvottahús. Gengt er úr þvottahúsinu út í bílskúr. Viðbygging var gerð við bílskúrinn 1979 og gert gott geymsluherbergi við endann á bílskúrnum.

Hringstigi er úr stofu upp á efri hæðina. Þar uppi eru 3 herbergi og salerni. Undir súð eru góðar geymslur. Svalir eru vestan á húsinu.

Parkett er á gólfum í öllum herbergjum, stofu og í eldhúsi. Flísar eru í forstofu og á gólfi í snyrtingu á neðri hæð og þvottahúsi. Dúkur er á gólfi á snyrtingu á efri hæð.  Inn af eldhúsi er lítið búr.

Stór garður er við húsið í góðri rækt. Sólpallur er sunnan við bílskúrinn og austan við húsið. Þar er friðsælt og þar nýtur sólar fram yfir miðjan dag, en þá er hægt að færa sig suður fyrir íbúðarhúsið á pall sem er þar.

Góð eign og skemmtileg hvort heldur fyrir stóra fjölskyldu eða fólk, sem vill hafa rúmt um sig.

 Nánari upplýsingar gefur Magnús Ólafsson sölufulltrúi s 440 6028 eða 664 6028magnus@domus.is eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 6170  netf. stefano@domus.is 

   

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29