Rauðalækur 16, 105
Verð |
59,9
|
Stærð |
87
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
687
|
Skráð |
18.3.2023 |
Fjarlægt |
|
Byggingarár |
1960 |
mbl.is |
1109820
|
Eignamiðlun kynnir:
Góð eign í þessu vinsæla hverfi í Laugardalnum. Sérinngangur. Leikvöllur rétt aftan við hús. Sameiginlegur garður. Íbúðin er 87,2 fm - 3ja herbergja við Rauðalæk 16.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi, anddyri og litla geymslu. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Nánari lýsing:Komið inní rúmgott anddyri, innaf því er geymsla á vinstri hönd. Flísar á gólfi.
Eldhús með hvítum flísum og eldhúsinnréttingu (2012) og ný rafmagnstafla fyrir eldhús sett á sama tíma. Flísar á gólfi.
Stór og falleg stofa með harðparketi á gólfi.
Hol sem hægt er að nota fyrir skrifstofu sem er með góðum fataskápum.
Tvö svefnherbergi, annað þeirra er lítið og hitt mjög rúmgott. Harðparket á gólfi.
Baðherbergið var yfirfarið 2017. Góð innrétting undir handlaug. Flísalagt með baðkari og sturtuhaus. Opnanlegur gluggi er inn á baðherbergi.
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Snyrtileg sameign. Fallegur sameiginlegur garður.
Húsið var steinað í kringum 1998 og þakið lagað í kringum 2009/2010. Skipt var um glugga á norðaustur hlíð hússins árið 2019. Skólplagnir endurnýjaðar 2019. Drenað var í kringum hús 2019. Allir gluggar málaðir að utan árið 2022.
Eignin er frábærlega staðsett en göngufæri er í leik- og grunnskóla, sundlaug og líkamsrækt. Kaffihús og útivistarsvæði Laugardalsins.
Nánari upplýsingar veitir:Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook