Gullsmári 9, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
62
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
|
Skráð |
24.11.2016 |
Fjarlægt |
9.12.2016 |
Byggingarár |
1996 |
mbl.is |
|
ÍBÚÐIN ER SELD - ERUM MEÐ FJÖLDA KAUPENDA AÐ ÍBÚÐUM Í GULLSMÁRA 7, 9 og 11. Falleg 61,6 fm tveggja herbergja íbúð á 7.hæð í lyftuhúsi, íbúð merkt 02-0704. Íbúðir hússins eru eingöngu ætlaðar fyrir 60 ára og eldri. Íbúðin skiptist í opna forstofu, opið eldhús, búr, borðkrók, stofu, herbergi og baðherbergi. Geymsla íbúðarinnar er í sameiginlegum kjallara og er ekki inn í stærð íbúðarinnar. Góð sameign með gang á 1.hæð inn í félagsmiðstöð, og salur á efstu. Hægt er að kaupa heita máltíð í félagsmiðstöðinni en einnig er þar önnur þjónusta s.s. hárgreiðslustofa, handsnyrtingar, félags- og tómstundarstarf o.fl.
Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagða forstofu með fataskáp. Opið parketlagt eldhús með búri. Parketlagður borðkrókur. Parketlögð stofa með vestursvölum með glerlokun og grasteppi. Parketlagt herbergi með stórum fataskáp. Stórt baðherbergi með veggflísum, gólfdúk, baðinnréttingu, sturtu og eru tengingar á baðherbergi fyrir þvottavél og barkarlausan þurrkara. Mikið útsýni er úr íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, s: 655-9000