Kirkjusandur 1, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 34 daga á skrá
Verð |
59,9
|
Stærð |
136
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
439
|
Skráð |
30.11.2018 |
Fjarlægt |
3.1.2019 |
Byggingarár |
1996 |
mbl.is |
|
Eignalind fasteignasala
Kirkjusandur 1, íbúð fyrir vandláta: Eignalind fasteignasala og Heiða Guðmundsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali, sími 7791929, Ellert Róbertsson sölumaður gsm. 893-4477 og Sigurður O Sigurðsson lögg. fasteignasali gsm. 616-8880 kynna í einkasölu glæsilega sérlega vel staðsetta 113,3 fm. endaíbúð íbúð á 3.hæð íbúð fylgir gott stæði í bílskýli. Þessi íbúð er sérlega henntug fyrir eldra fólk.
Nánari lýsing: Forstofa með góðum skáp, gott parketlagt hol. Eldhús er með góðri vandaðri innréttingu, gott búr, mjög góður borðkrókur, þar er glæsilegt útsýni m.a. út á sjó. Parketlögð stofa, frá stofu er gengið út á yfirbyggðar flísalagðar svalir. Sjónvarpshol/parket á gólfi. Á sér parketlögðum gangi er flísalagt baðherbergi með bæði baðkari og sturtu, svo og innréttingu. Gott hjónaherbergi með skáp, og rúmgott aukaherbergi með skáp/ parket á gólfum í báðum herbergjum. Sameiginlegt þvottahús fyrir fjórar íbúðir. Á 1. hæð er sér góð geymsla svo og önnur geymsla t.d. fyrir dekk, sameiginleg hjólageymsla, einnig er sameiginleg líkamsræktarstöð. Innangengt er í bílskýlið.
Öll sameign er til fyrirmyndar bæði úti og inn, á lóð er m.a. púttvöllur.
Húsvörður er í húsinu og sér um alla hluti.
Þetta er sérlega vel skipulögð íbúð á frábærum stað með miklu útsýni. Íbúð getur verið laus fljótlega.
Möguleiki er á að taka 2ja herbergja íbúð upp í kaupverð.
Hægt að skoða með stuttum fyrirvara.
Nánari upplýsingar og skoðun veitir Heiða Guðmundsdóttir, gsm 7791929 eða heida@eignalind.is og Ellert Róbertsson sölumaður gsm.
893-4477 eða ellert@eignalind.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eignalind fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Pantaðu frítt verðmat og skoðaðu ráðleggingar um sölu fasteigna á
www.verdmat.is